Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að fyrstu heildstæðu stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna á Íslandi. Skýrsla um fátækt barna og stöðu barnafjölskydlna var birt í vikunni og sýndi að dregið hefði úr fátækt barna frá aldamótum, úr 16,5% í 12,6%.
Mikill munur er á stöðu barna eftir fjölskyldugerð, uppruna og menntun foreldra. Meðal annars búa um 30% barna einstæðra foreldra við fátækt, samanborið við um 8% barna sem búa með tveimur foreldrum.
Meðal barna sem fædd eru erlendis og eiga tvo foreldra sem báðir eru af erlendum uppruna hækkaði fátæktarhlutfallið úr 23% árið 2000 í nær 34% árið 2024.
Markmiðið með þingsályktunartillögunni er að draga úr fátækt barna og stuðla að því að öll börn hafi jöfn tækifæri til þátttöku og farsældar, óháð efnahag og félagslegri stöðu fjölskyldna þeirra.
Lögð er áhersla á að fjárhagsstaða heimilis takmarki ekki möguleika barna til þátttöku í skólastarfi, tómstundum og félagslífi.