Stálheppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í lottóútdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 129 milljónir króna í sinn hlut.Miðinn góði var keyptur í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði að því er segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá. Þrír skiptu svo með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 400 þúsund krónur í vasann. Tveir miðar voru keyptir í Lottó appinu og einn á N1 Háholti.
Einn hirti tæpar 130 milljónir í lottóinu í kvöld