Bandarísk kona hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum með því að sýna árangurinn eftir margra ára aðgerðir til að endurbyggja nef hennar, sem skemmdist alvarlega vegna mikillar kókaínneyslu.Konan, Kelly, hefur frá árinu 2022 deilt bataferlinu á TikTok. Hún segir langvarandi kókaínneyslu hafa orðið til þess að brjóskvefir í nefi hennar eyðilögðust og nefið að lokum féll saman.„Ég notaði einfaldlega allt of mikið kókaín í nefið. Það eyðilagðist alveg og með tímanum féll það saman,“ sagði Kelly þegar hún lýsti skemmdunum.
Nefið eyðilagðist eftir áralanga kókaínneyslu – Svona lítur hún út í dag