Singapore Airlines hefur verið valið besta flugfélag heims árið 2026 samkvæmt árlegri úttekt Skytrax. Verðlaunin, sem gjarnan eru kölluð Óskarsverðlaun fluggeirans, voru afhent við hátíðlega athöfn í London í gær.Þetta er í sjötta sinn sem Singapore Airlines hlýtur aðalverðlaunin í 25 ára sögu Skytrax. Félagið vermdi síðast toppsætið árið 2023 en tók það nú af Qatar Airways, sem sigraði í fyrra og hefur verið valið besta flugfélag heims níu sinnum á síðustu 15 árum.
Þetta eru 10 bestu flugfélög heims – Nýtt félag á toppnum