Almennilegar almenningssamgöngur vantar milli sveitarfélaga á Vestfjörðum, sérstaklega vegna íþrótta- og tómstundastarfs. Ungmenni vilja að stjórnvöld taki mark á skoðunum þeirra og grípi til aðgerða.
Hafa áhyggjur af að ungmenni flosni upp úr íþróttum og tómstundum
Ungmennaþing Vestfjarða var haldið á Suðureyri dagana 16. til 18. september. 40 fulltrúar úr sex af átta sveitarfélögum á Vestfjörðum sóttu þingið. Samgöngur voru ungmennunum ofarlega í huga og þau töluðu einum rómi um að setja almenningssamgöngur í forgang. Þau kröfðust aðgerða sveitarfélaga og ríkis.
„Ungmennum finnst vanta meiri almenningssamgöngur á milli sveitarfélaga, sérstaklega í kringum íþróttastarf, þar sem í sumum sveitarfélögum er ekki hægt að æfa neinar íþróttir og þau hafa engan aðgang að íþróttastarfi. Í fyrsta lagi þarf almennilegar almenningssamgöngur til að komast á milli sveitarfélaga,“ segir Alberta Kristín Jónsdóttir, sem er í ungmennaráði Vestfjarða. Það er ráðgefandi nefnd fyrir Fjórðungssamband Vestfirðinga.
Ungmennin líta á samgöngur sem grundvallarforsendu þátttöku í íþróttum, menningu og félagslífi. Þau leggja áherslu á að auknar almenningssamgöngur gætu opnað á fleiri tækifæri.
Hverjar eru áhyggjur ykkar?
„Að ungmenni hætti í íþróttum og að það verði óalgengara að ungmenni stundi íþróttir og tómstundir.“
Hún segir sveitarfélög og ríki eiga að taka mark á skoðunum ungmenna.
„Við viljum að sveitarfélögin og ríkið taki mark á skoðunum ungmenna og virði það sem þeim finnst og geri eitthvað í því.“
Staðan einna verst í Reykhólahreppi og hjá ungmennum í Vesturbyggð
Staðan virðist vera einna verst í Reykhólahreppi. Ungmenni þaðan lýstu því að ekkert íþróttastarf væri í boði fyrir þau í heimabyggð. Þau hefðu því ekki tækifæri til að stunda íþróttir þar.
Erna Lea Bergsteinsdóttir, verkefnastjóri hjá Vestfjarðastofu, segir félagsstarfið líka af skornum skammti þar.
„Þau voru að óska eftir því að fá þá frekar að fara á Hólmavík og æfa með fleiri ungmennum og kynnast fleiri ungmennum þar en í rauninni voru þau mjög slegin yfir því að það væri ekkert í boði.“
Erna segir að staðan sé einnig slæm hjá ungmennum í Vesturbyggð.
„Þar eru til dæmis ekki almenningssamgöngur milli Bíldudals, Tálknafjarðar og Patreksfjarðar, þannig að eins og börn á Bíldudal komast ekki á íþróttaæfingar þar. Ég veit að það er mikill vilji fyrir því að vera í meira samstarfi en það vantar þessar almenningssamgöngur til þess að við getum gert svo margt.“
Vantar að taka raunverulega mark á ungmennum
Ungmennaráðið lýsti óánægju sinni með stöðu almenningssamgangna á Vestfjörðum í umsögn um samgönguáætlun til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í febrúar.
Erna Lea Bergsteinsdóttir, verkefnastjóri hjá Vestfjarðastofu, segir viðbrögð þingmanna og sveitarfélaga hafa verið góð.
„Þau tóku öll undir mikilvægi þess að það þyrfti að bæta almenningssamgöngur en í rauninni hefur lítið gerst.“
Þetta hafi líka verið kosningaloforð í sveitarstjórnarkosningunum í vor en staðan hafi lítið breyst.
„Mann langar að ítreka það að einn mánuður án íþrótta í lífi barns er alveg hellingur. Og eftir að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis gerði nýtt frumvarp þá kom ekki fram þessi krafa um almenningssamgöngur hérna á Vestfjörðum, þar. Þannig að okkur þykir vanta að það sé tekið raunverulega mark á þessu, ekki bara í fjölmiðlum. Þau eru í alvöru að kalla eftir þessu.“