Bandarísku miðlarnir CNN, MS Now og Politico fordæmdu í dag bann Bandaríkjaforseta við komu blaðamanna þeirra í Hvíta húsið í Washington.
Donald Trump Bandaríkjaforseti sakaði miðlana í gær um að deila falsfréttum og sagði að fleiri fjölmiðlum yrði meinaður aðgangur að Hvíta húsinu í kjölfarið. Hann hefur áður meinað fréttaveitunni Associated Press aðgang eftir að fréttaveitan neitaði að kalla Mexíkóflóa „Ameríkuflóa“.
Associated Press höfðaði mál gegn banninu sem er enn í vinnslu og gert er ráð fyrir að CNN, MS Now og Politico leiti einnig til dómstóla.