FÍB segir litlar breytingar hafa orðið varðandi innheimtu vangreiðslugjalda á bílastæðum nema að ítarlegri texti með smærra letri hefur verið settur á skilti við gjaldskyld stæði. Einnig sé svo komið að reikningur fylgi orðið kröfum bílastæðafyrirtækjanna í heimabanka.
Ný lög um markaðssetningu frá í maí hafi lítil sem engin áhrif á innheimtu vangreiðslugjaldanna, sem mikið hafi verið kvartað undan. FÍB og Neytendasamtökin telja nýlegan norskan dóm um ólögmæti aukagjalda á bílastæði geta átt við hérlendis.
Hins vegar hafi Neytendastofa í ágúst sektað bílastæðafyrirtækin Parka og Easypark vegna ófullnægjandi upplýsinga og merkinga. Þannig einblíni Neytendastofa á smáa letrið en ekki stærri þætti málsins.
FÍB rifjar upp að Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra boðaði aðgerðir til umbóta fyrir rúmu ári eftir að henni ofbauð hátt vanrækslugjald á bílastæði við Kirkjufell. Hún hafi kynnt ýmsar tillögur í janúar og sagt koma til greina að setja heildarreglugerð um gjaldskyld bílastæði.
Hún hafi þó ekki verið sett né heldur reglugerð um umferðarmerki og ekki orðið af uppsetningu yfirlitsvefsíðu um gjaldskyld bílastæði.
FÍB segir jafnframt að stjórnvöld hafi ekki brugðist við því sem félagið kallar ósvífnustu innheimtuna; fimm hundruð króna gjald ríkisfyrirtækisins Isavia fyrir hverja mínútu umfram fimm á brottfararsvæðinu við Leifsstöð.