Forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) segir atvik fyrir utan fund Sundsambands Íslands á fimmtudagskvöld hafa verið harmleik. Hann segir ÍSÍ í samskiptum við sambandið og félögin sem um ræðir og reynt sé að hlúa að öllum sem áttu hlut að máli.
Greint var frá því í gær að til átaka hefði komið milli sundþjálfara KR og Gróttu fyrir utan fund Sundsambandsins á fimmtudagskvöld. Þjálfari KR mun hafa ráðist á þjálfara Gróttu og dregið upp hníf.
Lögregla var kölluð til, en þjálfari KR mun hafa flúið vettvang á bíl. Lögregla veitti honum eftirför og ók á bifreiðina til að stöðva hana því hann fylgdi ekki fyrirmælum. Maðurinn slóst við lögreglu en var loks handtekinn, að því er fram kom í dagbók lögreglu í gærmorgun.
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, segir í samtali við fréttastofu að málið sé harmleikur og að sambandið leggi áherslu á að hlúa að öllum hlutaðeigandi.
KR og Grótta hafa bæði sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem atvikið er harmað. Í yfirlýsingu félaganna segir að málið sé í vinnslu hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og hjá lögreglu.