Danska samfélagsmiðlastjarnan Camilla-Kenya Bruun Julendal hefur opnað sig um hatrið sem hún fær á samfélagsmiðlum eftir að hún hóf að birta myndbönd til að sýna fólki hversu eðlilegu lífi fólk með hreyfihömlun lifir. Camilla er 36 ára og er með vöðvarýrnunarsjúkdóm. Í viðtali við danska tímaritið Woman segir Camilla að hún eigi stundum erfitt með að lesa athugasemdirnar sem hún fær á TikTok.
Camilla opnar sig um hatrið á samfélagsmiðlum: „Líf mitt hefur tilgang þó ég kosti samfélagið peninga“