Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að tekjutap af yfirvofandi verkfalli flugvirkja geti hlaupið á milljörðum fyrir greinina. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í deilunni.
Ótímabundið verkfall flugvirkja hefst að óbreyttu aðfaranótt miðvikudags.
„Við höfum mjög þungar áhyggjur af þessu og þetta er farið að hafa mikil áhrif nú þegar. Fyrirtækin okkar eru að fá símtöl frá viðskiptavinum sem hafa miklar áhyggjur og eru annaðhvort að hætta við eða færa til út af yfirvofandi verkfalli,“ segir Pétur Óskarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.
Fundur í deilunni í gær var árangurslaus. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar.
Pétur segir að orðspor Íslands eigi eftir að skaðast komi til verkfalls og tekjutap verði mikið.
„Íslensk ferðaþjónusta er sirka að velta milljarði á dag í september, það er að segja þessi hluti flugsins sem myndi falla niður. Þannig það er alveg gríðarlegt tjón sem verður strax fyrsta daginn hjá greininni,“ segir Pétur jafnframt.
Vill að stjórnvöld grípi inn í
„Svo má ekki gleyma því að næstum því þriðja hver króna af því fer í ríkiskassann þannig að tjón ríkisins er um það bil 300 milljónir á dag,“ bætir hann við.
Pétur segir að samtökin skori fyrst og fremst á deiluaðila að lenda málinu en ef það takist ekki þurfi stjórnvöld að grípa inn í.
„Ef það tekst ekki eru það auðvitað almannahagsmunir að stjórnvöld grípi inn í eins og áður hefur verið gert þegar fyrir liggur að flug til og frá landinu er að falla niður. Við erum bara að hvetja stjórnvöld til að gera það sem þarf að gera ef þess þarf en auðvitað vonum við að það komi ekki til þess.“