Hælisleitandi rændi strætisvagni og ók á bíla

Strætisvagni var stolið af hælisleitanda í Shropshire í Bretlandi eftir hafa ráðist á bílstjórann, en vagninn lenti síðar í árekstri við röð kyrrstæðra bíla.
Á myndskeiðum sem birt hafa verið á samfélagsmiðlum má sjá mann ráðast á bílstjórann áður en hann tók við stýrinu, ók vagninum röngum megin vegarins og á fjölda bíla.
Heyra má farþega öskra á manninn að stöðva og hvetja fólk til að víkja úr vegi.
Vopnaðir lögreglumenn voru sendir á vettvang við Court Street í Telford um klukkan 18:35 að breskum tíma á föstudag.
33 ára gamall maður var handtekinn og er enn í haldi lögreglu. Sjúkraflutningamenn sinntu bílstjóranum vegna minniháttar meiðsla en talið er að enginn annar hafi slasast, að sögn lögreglu. Lögreglan í West Mercia greindi frá því að maðurinn hafi ekið vagninum eftir Park Way í átt að High Street. Lögreglumenn stöðvuðu vagninn að lokum og handtóku manninn, grunaðan um rán og hættulegan akstur.
Edward Hancox, yfirlögregluþjónn í Telford, sagði lögregluna skilja hversu „áhyggjuefni“ atvikið hafi verið fyrir íbúa Madeley og samfélagið í Telford almennt.
„Ég vil fullvissa fólk um að rannsókn málsins stendur enn yfir af fullum krafti. Lögreglumenn voru komnir á vettvang og höfðu handtekið viðkomandi innan tíu mínútna frá því að fyrsta tilkynning barst.“
Vopnaðar lögreglusveitir voru sendar á vettvang frá lögreglustöðinni í Malinsgate, sagði Hancox, og þakkaði almenningi fyrir að hafa veitt bílstjóranum aðstoð áður en lögreglan kom á staðinn.
„Við kunnum mikils að meta þá umhyggju og þann stuðning sem samfélagið hefur sýnt. Við erum einnig mjög þakklát öllum þeim sem hafa þegar gefið sig fram með upplýsingar eða sent okkur myndefni.
„Við erum nú að fara yfir þau gögn sem okkur hafa borist vegna rannsóknarinnar, en hvetjum samt sem áður alla þá sem búa yfir myndefni eða upplýsingum, og hafa ekki enn rætt við okkur, til að hafa samband.“
Talsmaður Arriva sagði fyrirtækið vita af atvikinu og veita bílstjóranum stuðning, samhliða því að aðstoða lögregluna við rannsókn málsins.
Myndband af atvikinu má sjá hér neðar:
BBC greinir frá.