Lögregla handtók 24 mótmælendur í hollensku borginni Haag í dag við um 500 manna útifund samtaka yst á hægri kanti stjórnmálanna.
Hollenska almannafréttastöðin NOS segir ofbeldi hafi brotist út á fundinum og lögregla því ætlað að leysa hann upp. Þá köstuðu svart- og grímuklæddir mótmælendur skoteldum að lögreglu sem svaraði með beitingu vatnsfallbyssa. Mótmælin beindust að innflytjendastefnu stjórnarinnar og voru skipulögð af samtökunum Wij Zijn Het Volk sem gæti útlagst Við erum þjóðin.