„Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ - Vísir

„Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ - Vísir

„Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ - Vísir

Eru það þau Þórður Pálmason og Auður Kristmundsdóttir sem eina ferðina enn standa að baki opnun staðarins en þau komu að fyrstu opnun hans á Lækjargötu, því næst á Klapparstíg, svo á Vesturgötu og nú loks á glænýju götuhorni.

Afinn í geiranum

Þórður, sem er af mörgum þekktur sem Doddi á Rosenberg og kynnir sig sem Doddi, staðfestir þetta í samtali við blaðamann Vísis.

„Ég er búinn að vera í veitingarekstri síðan 1988, frá síðustu öld. Þannig að ég er afinn í veitingarekstrinum og hef alltaf verið með mikið af lifandi tónlist í kringum mig,“ segir hann og bætir við að það hafi verið hvati til að opna staðinn á ný að geta boðið upp á tónlistarflutning líkt og gert var á Klapparstíg um árabil.

„Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“

Doddi og Auður hafa þurft að takast á við ýmislegt er viðkemur rekstrinum en árið 2007 kom upp eldur í húsum við Austurstræti og Lækjargötu og urðu við það töluverðar skemmdir á húsakynnum kaffihússins við Lækjargötu 2.

Seldi staðinn sökum aldurs

Sömu eigendur og áttu það hús buðu þeim hjónunum að færa reksturinn upp á Klapparstíg 27.

„Það gekk gríðarlega vel í tíu ár. Svo fannst mér ég sko orðinn svo gamall að ég seldi staðinn,“ segir Doddi en þeir Ólafur Örn Ólafsson og Kári Sturluson ráku þá staðinn í um fimm mánuði.

Síðan hafi þau Doddi og Auður opnað kaffihúsið Café Rosenberg á Vesturgötu og gekk það vel þar sem þau seldu mestmegnis bakkelsi og skipulögðu tónleika af og til. Við flutningana yfir á nýja staðinn segir Doddi að þau ætli að reyna að skapa svipaða stemningu og hafi verið á Klapparstígnum.

„Við erum búin að vera að mála hérna og sparsla og búa til hljóðgildrur og alls konar. Við erum að búa staðinn undir svona akústík, heimilislega tónlist,“ útskýrir hann. Neðri hæðin, þar sem áður hafi verið hægt að fara í karaókí, verður gerð að aðstöðu fyrir tónlistarfólk eða svokölluðu grænu herbergi.

Svavar Knútur með frá upphafi

Einn þeirra sem hafa þegar verið bókaðir til að spila á staðnum er tónlistarmaðurinn Svavar Knútur. Það verður þann fjórða nóvember sem hann stígur á stokk að öllu óbreyttu.

„Við erum búin að vera að starfa með honum síðan hann var gutti að byrja í tónlist,“ segir Doddi og bætir við að það hafi einnig verið rætt við skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar Icelandic Airwaves um að halda tónleika á staðnum í haust.

Þau bíði nú spennt eftir því að fá öll tilskilin leyfi frá Reykjavíkurborg.

Þegar fréttin er birt hafa um tuttugu manns skrifað ummæli undir nýjustu færslu þeirra hjóna þar sem þau greina frá því að „allt sé að verða klárt“ en flestir, ef ekki allir, ummælendur bíða spenntir eftir opnuninni.Facebook/Café Rosenberg

„Nú erum við bara að vona að borgin, Reykjavíkurborg, ölmusi yfir okkur,“ segir Doddi og hálfgrínast með að þau séu að vissu leyti búin að stilla sér upp við vegg með því að bóka fjöldamarga tónleika í nóvembermánuði.

Bíða spennt eftir leyfum

Hann segir þau hafa sótt um leyfi í apríl þessa árs og voni innilega að nú fari leyfin að detta í hús. Þau reikni með að hafa opið seinnipartinn og fram á kvöldin, í það minnsta til að byrja með.

„Við verðum með bara svona léttar matarveitingar en númer eitt, tvö og þrjú ætlum við að einbeita okkur að lifandi tónlist,“ ítrekar Doddi. Hann segir frá því að þegar staðurinn hafi verið á Klapparstíg hafi þau eitt árið staðið fyrir ríflega þrjú hundruð tónleikum sama árið.

Staðurinn var áður til húsa við Vesturgötu en þar var ekki eins góð aðstaða til tónleikahalds og er á nýja staðnum.Facebook/Café Rosenberg

Aðspurður hvaðan nafnið kom til segir Doddi blaðamanni frá vini sínum Jóni Þórissyni sem sé oftar en ekki kallaður Jón Mínus.

„Hann var leiktjaldahönnuður í Borgarleikhúsinu og við kynntumst bara út af því að hann var myndlistarmaður og hann hafði hannað Fógetann, sem ég átti árið 1988,“ segir Doddi og bætir við: „Svo einn daginn hringi ég í Jón og segi við hann: „Ég ætla að opna annan stað. Viltu skoða þetta húsnæði með mér og vera með mér?“

Eftir það hafi hann verið hönnuður að öllu sem Doddi gerði en hann hafi stungið upp á því að líta til þess að Rosenberg hafi verið veitingastaður í sama húsnæði á Lækjargötu og Café Rosenberg starfaði í fram að brunanum.

„Þannig að það var að endurvekja í rauninni nafnið. Eigandinn var Dani sem kom í heimsókn til Íslands og varð ástfanginn af íslenskri konu og fór aldrei, heldur opnaði kaffihúsið Rosenberg.“

Fallegt að finna fyrir stuðningnum

Alla tíð hafi þau Doddi og Auður kappkostað að bjóða upp á skikkanlegt verð og notalega framkomu við gesti.

„Ég er náttúrulega bara gamall þjónn, lærður kennari og svo er ég smiður líka, sem hefur alltaf nýst mér mjög vel. Konan mín málar og ég smíða.“

Þau hafi nú ákveðið að láta slag standa einu sinni enn og við miklar undirtektir en Doddi segir fjölda fólks hafa hvatt þau til dáða í þessum efnum.

„Það er auðvitað bara niðurstaðan í þessu samstarfi hjá mér og konunni minni og öllum tónlistarmönnum sem ég veit um að það eru allir bara að bíða eftir að ég opni, það er fallegt.“

Þeim þyki það ekkert meira kvíðavaldandi að hafa svona marga óþreyjufulla framtíðargesti sem reki á eftir þeim.

„Þetta er bara vinskapur og þetta er ást og umhyggja“

Þau sjái fram á að reka staðinn vonandi í um áratug en svo sé óvíst hvað verði um hann.

„Stóri galdurinn í öllum rekstri er að leyfa honum að ganga, hafa sinn gang. Vera slakur bara yfir því hvernig kvöldið á að klárast og reyna að sjá til þess að allir fari glaðir heim.“

#bara #langar #okkur #til #þess

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262937062d/cafe-rosenberg-endur-vakid-okkur-langar-bara-til-ad-gera-thetta-allt-aftur-

📰 Aðrar fréttir

Kristrún opin fyrir fleiri NATO-hermönnum á Íslandi en telur fasta viðveru óþarfa
📅 07.11.2026 👁️ 1
Kristrún opin fyrir fleiri NATO-hermönnum á Íslandi en telur fasta viðveru óþarfa
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er opin fyrir því að fleiri hermenn NATO komi til Íslands í skiptivinnu en telur ekki þörf á fastri bandarískri...
„Hún mun alltaf vera með mér“
📅 07.11.2026 👁️ 1
„Hún mun alltaf vera með mér“
„Hún mun alltaf vera með mér“ Adolf Þór Har­alds­son missti stóru ást­ina í lífi sínu aðeins nítján ára gam­all þegar Hannah Jane Large lést á Krýsu­v...
Svíþjóðardemókratar gefa eftir kröfu um að vera í ríkisstjórn
📅 07.11.2026 👁️ 1
Svíþjóðardemókratar gefa eftir kröfu um að vera í ríkisstjórn
Þjóðernisflokkurinn Svíþjóðardemókratar hefur fallið frá kröfu um ráðherraembætti í nýrri ríkisstjórn í Svíþjóð. Jimmie Åkesson, formaður flokksins, t...
Enn einn maðurinn ætlaði að myrða Trump - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 1
Enn einn maðurinn ætlaði að myrða Trump - Vísir
Fréttaveitan AP greinir frá en þar segir að leyniþjónustumenn hafi nálgast manninn á fimmtudagskvöld. Hann hafi verið talinn hafa hagað sér grunsamleg...
Steinunn og Jóhann fundu leiðina aftur til hvors annars eftir fjögur ár: „Ég hugsaði: Sjáum hvað hann hefur að segja“
📅 07.11.2026 👁️ 1
Steinunn og Jóhann fundu leiðina aftur til hvors annars eftir fjögur ár: „Ég hugsaði: Sjáum hvað hann hefur að segja“
Hver ástarsaga er einstök og þar með talin saga þeirra Steinunnar Óskar Valsdóttur og Jóhanns Helga Sveinssonar. Þau eru gott dæmi um „rétta manneskju...
„Upp­áhalds­leikarinn minn er Jón Jóns­son að leika konur“ - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 1
„Upp­áhalds­leikarinn minn er Jón Jóns­son að leika konur“ - Vísir
Veruleikinn er þó annar hjá sjónvarpsmanninum, uppistandaranum og skemmtikraftinum sem stýrir Kviss á Sýn, heldur spurningakeppnir fyrir fyrirtæki og ...
Lögum um nýja gjaldheimtu í höfnum landsins fylgir engin reglugerð
📅 07.11.2026 👁️ 1
Lögum um nýja gjaldheimtu í höfnum landsins fylgir engin reglugerð
Öll stærstu skip sem koma í íslenskar hafnir greiða úrgangsgjald og förgunargjald samkvæmt gjaldskrá viðkomandi hafnarsjóðs. Það er á þeirra ábyrgð, o...
Woman critical after being rescued from the sea in Costa Adeje
📅 07.11.2026 👁️ 1
Woman critical after being rescued from the sea in Costa Adeje
A woman was taken to hospital in a critical condition yesterday, Friday 6th November, after being pulled from the sea at Playa La Pinta in Costa Adeje...
Ný stefna leysir þá þrettán ára gömlu af hólmi - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 1
Ný stefna leysir þá þrettán ára gömlu af hólmi - Vísir
Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins segir að markmið stefnunnar sé að draga úr skaða af völdum áfengis og annarra vímuefna og tryggja fólki...
Hnífjafnar og spennandi þingkosningar
📅 07.11.2026 👁️ 1
Hnífjafnar og spennandi þingkosningar
Það stefnir í hnífjafnar og spennandi þingkosningar á Nýja-Sjálandi í dag. Aðeins nokkur hundruð atkvæði skilja að þingflokk forsætisráðherra og Verka...
Áhrifavaldar og hlaðvarpsstjórnendur áberandi í dómsal
📅 07.11.2026 👁️ 1
Áhrifavaldar og hlaðvarpsstjórnendur áberandi í dómsal
Athygli vakti að áhrifavaldar og hlaðvarpsstjórar sóttu réttarhöld í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur, sem sökuð er um umfangsmikið umsáturseinelti ge...
Ökumaður stöðvaður eftir að hafa ekið á tvo ljósastaura
📅 07.11.2026 👁️ 1
Ökumaður stöðvaður eftir að hafa ekið á tvo ljósastaura
Lögregla stöðvaði ökumann eftir að hann ók á ljósastaur, upp á umferðareyju og á annan ljósastaur miðsvæðis í borginni. Ökumaðurinn var vistaður í fan...
Events cancelled and municipal attractions closed in Tenerife due to Storm Bruna
📅 07.11.2026 👁️ 1
Events cancelled and municipal attractions closed in Tenerife due to Storm Bruna
Residents and holidaymakers in Tenerife are being urged to check their plans as Storm Bruna approaches the island, with closures and event suspensions...
Hefur fyrir­gefið bana­manni systur sinnar - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 1
Hefur fyrir­gefið bana­manni systur sinnar - Vísir
Gerða var fimmtán ára unglingur þegar eldri systir hennar, Linda Björk Bjarnadóttir, lést í kappakstursslysi á Hverfisgötu í Reykjavík, í apríl árið 1...
Húðin bráðnaði – aðeins neglurnar héldust á sínum stað
📅 07.11.2026 👁️ 1
Húðin bráðnaði – aðeins neglurnar héldust á sínum stað
Húðin bráðnaði – aðeins neglurnar héldust á sínum stað Hlustaðu 03:50 · Sif −15 +30 1× Heimir Már Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Flokks f...
Gerðu á­rásir á nærri Hormússundi - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 1
Gerðu á­rásir á nærri Hormússundi - Vísir
Íranskir miðlar greina frá hljóðum frá tveimur flugskeytum á Suza-svæðinu á eyjunni Qeshm en eyjan er mikilvægur þáttur í olíuflutningaleið um svæðið....
Gerðu á­rásir nærri Hormússundi - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 1
Gerðu á­rásir nærri Hormússundi - Vísir
Íranskir miðlar greina frá sprengjuhljóðum frá tveimur flugskeytum á Suza-svæðinu á eyjunni Qeshm en hún er mikilvægur þáttur í olíuflutningaleið um s...
Víða allhvasst í kvöld og kólnar á morgun
📅 07.11.2026 👁️ 1
Víða allhvasst í kvöld og kólnar á morgun
Búast má við suðvestan átt, strekkingi og rigningu víða um landið. Þurrt verður að mestu austanlands. Víða verður svo hvasst eða allhvasst í kvöld. Hi...
Kólnar í veðri næstu daga - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 1
Kólnar í veðri næstu daga - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að lægðardrag liggi yfir landinu sem valdi strekkingi og úrkomu víða. Búist er við suðvestanátt á bilinu 10 til 18 ...
Concern over growing illegal settlement close to complexes in south Tenerife
📅 07.11.2026 👁️ 1
Concern over growing illegal settlement close to complexes in south Tenerife
Residents in Los Cristianos are calling for action as an illegal settlement continues to grow on the slopes of Montaña de Guaza, close to residential ...
Ók upp á um­ferðar­eyju og á tvo ljósa­staura - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 1
Ók upp á um­ferðar­eyju og á tvo ljósa­staura - Vísir
Er þetta meðal þeirra 78 mála sem bókið eru í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Alls eru sex vistaðir í geymslum lögreglu.  Er þetta meðal þeir...
Flugferlar Græn­lands hannaðir í Reykja­vík - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 1
Flugferlar Græn­lands hannaðir í Reykja­vík - Vísir
„Fyrir utan þessi þrjú stóru verkefni hefur Avians séð um flugferlahönnun og flugprófanir á flugvöllum Grænlands og Færeyja í fjöldamörg ár,“ segir In...
„Sárs­auki í sinni hreinustu mynd“ - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 1
„Sárs­auki í sinni hreinustu mynd“ - Vísir
Halla er fædd árið 1996 og á tvo stráka. Hún er menntaður grunnskólakennari en á uppvaxtarárunum átti tónlistin hug hennar allan og fyrir tveimur árum...
Óttar Guðmundsson skrifar: Marilyn og Ragnheiður
📅 07.11.2026 👁️ 1
Óttar Guðmundsson skrifar: Marilyn og Ragnheiður
Mynd Ragnheiður Brynjólfsdóttir biskupsdóttir er ein frægasta
Ragnheiður Sigurðardóttir skrifar: Ég fór til vinnu – ekki til að missa heilsuna
📅 07.11.2026 👁️ 1
Ragnheiður Sigurðardóttir skrifar: Ég fór til vinnu – ekki til að missa heilsuna
Ragnheiður Sigurðardóttir skrifar: Þegar einstaklingur verður fyrir varanlegu heilsutjóni á vinnustað vakna spurningar um ábyrgð, réttlæti og stöðu hi...
Yfir þúsund komu sjóleiðis til El Hierro á einum degi – hundruð flutt til Tenerife
📅 07.11.2026 👁️ 1
Yfir þúsund komu sjóleiðis til El Hierro á einum degi – hundruð flutt til Tenerife
Alls komu 1.003 manns sjóleiðis til El Hierro á Kanaríeyjum föstudaginn 6. nóvember. Um 350 voru flutt frá eyjunni til Tenerife um morguninn og áætlað...
Pope Leo in 'pretty good health' as he starts Latin America tour
📅 07.11.2026 👁️ 1
Pope Leo in 'pretty good health' as he starts Latin America tour
Pope Leo travels to Uruguay just three weeks after having surgery for lung cancer.
Pútín setur á tímabundnar hömlur á Rússa sem búa erlendis
📅 07.11.2026 👁️ 1
Pútín setur á tímabundnar hömlur á Rússa sem búa erlendis
Vladimir Pútín Rússlandsforseti ætlar að setja á tímabundnar hömlur á Rússa sem búa erlendis. Forsetinn undirritaði forsetatilskipun í gær um stofnun ...
Pútín setur tímabundnar hömlur á Rússa sem búa erlendis

Parliament restoration delays 'frustrating', says Commons Speaker
📅 07.11.2026 👁️ 4
Parliament restoration delays 'frustrating', says Commons Speaker
Sir Lindsay Hoyle urges action after a committee warns it is "crunch time" for the ailing building.
Frétta­tía vikunnar: Lyklar, gler­búr og Inga Sæ­land - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 3
Frétta­tía vikunnar: Lyklar, gler­búr og Inga Sæ­land - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Bandaríkjaher gerði árásir á Qeshm-eyju
📅 07.11.2026 👁️ 4
Bandaríkjaher gerði árásir á Qeshm-eyju
Bandaríkjaher gerði árásir á Qeshm-eyju úti fyrir ströndum Írans í gær. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í viðtali við fjölmiðla í gær að Íranar h...
Married at First Sight UK: Relief, tears and sadness - how cast reacted to Channel 4 show being axed
📅 07.11.2026 👁️ 4
Married at First Sight UK: Relief, tears and sadness - how cast reacted to Channel 4 show being axed
It was cancelled after a BBC Panorama investigation heard allegations from three former cast members.
Tesla dregur úr framleiðslu á Cybertruck-bílum
📅 07.11.2026 👁️ 4
Tesla dregur úr framleiðslu á Cybertruck-bílum
Dregið verður úr framleiðslu á Cybertruck-bílum í verksmiðju Tesla í Texas um mitt næsta ár. Elon Musk, stofnandi og framkvæmdastjóri Tesla, greindi f...
Texas mayor instructs police to limit cooperation with ICE
📅 07.11.2026 👁️ 4
Texas mayor instructs police to limit cooperation with ICE
The new policy, which comes after a Democratic sweep of the state, will limit the people it will inform the immigration agency about to those who have...
Bandaríkjastjórn býður greiðslur fyrir upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írana
📅 07.11.2026 👁️ 4
Bandaríkjastjórn býður greiðslur fyrir upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írana
Bandaríkjastjórn býður allt að 20 milljónir dollara í greiðslu og mögulegan flutning til annars lands fyrir upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írana.Aðger...
Skepta returns 'to set levels' with his long-awaited sixth album
📅 07.11.2026 👁️ 1
Skepta returns 'to set levels' with his long-awaited sixth album
The grime artist, widely considered to be one of the UK's best, returns with his first album in seven years.
Fyrrum forseti settur í stofufangelsi
📅 07.11.2026 👁️ 4
Fyrrum forseti settur í stofufangelsi
Yfirvöld í Paragvæ settu fyrrum forseta landsins, Santiago Pena, í stofufangelsi í gær. Saksóknarinn Silvia Margarita Gonzalez Vester sagði í viðtali ...
'My mortgage has gone up already': How rising interest rates are hitting people's pockets
📅 07.11.2026 👁️ 1
'My mortgage has gone up already': How rising interest rates are hitting people's pockets
With UK interest rates set to rise, mortgages, credit cards and loans could get more expensive for millions.
Skipulögð brotastarfsemi ein helsta ógnin við vestrænt lýðræði og samfélag
📅 07.11.2026 👁️ 3
Skipulögð brotastarfsemi ein helsta ógnin við vestrænt lýðræði og samfélag
Skipulögð brotastarfsemi þar sem erlend glæpagengi koma mjög við sögu er fyrirferðarmikil í löggæsluáætlun til næstu fimm ára, sem dómsmálaráðuneytið ...
Gladiator II stuntman sues over injuries from on-set explosion
📅 07.11.2026 👁️ 4
Gladiator II stuntman sues over injuries from on-set explosion
Edward Sarsfield says he suffered "excruciating" burns while filming a scene on a burning ship.
Jehovah's Witness rules on blood transfusions have changed, but it's too late for my brother
📅 07.11.2026 👁️ 1
Jehovah's Witness rules on blood transfusions have changed, but it's too late for my brother
Jehovah's Witness leaders relaxed strict rules on blood transfusions, but the change came 23 days too late for Isaac Valdez.
Kennararáð Cornell-háskóla lýsir yfir vantrausti á stjórn skólans
📅 07.11.2026 👁️ 4
Kennararáð Cornell-háskóla lýsir yfir vantrausti á stjórn skólans
Kennararáð Cornell-háskóla í Bandaríkjunum hefur lýst yfir vantrausti á yfirstjórn skólans vegna viðbragða hennar við kynferðisofbeldi innan háskólans...
Paraguay's President Santiago Peña impeached and arrested
📅 07.11.2026 👁️ 4
Paraguay's President Santiago Peña impeached and arrested
Peña was ousted due to a banking crisis which left millions of people unable to access their money.
Paraguay's President Santiago Peña impeached and under house arrest
📅 07.11.2026 👁️ 1
Paraguay's President Santiago Peña impeached and under house arrest
Santiago Peña was ousted due to a banking crisis which left millions of people unable to access their money.
What happens if the internet goes down? BlackSky - the UK's emergency backup plans
📅 07.11.2026 👁️ 3
What happens if the internet goes down? BlackSky - the UK's emergency backup plans
A Black Sky event could leave millions without power, water and communications. So how prepared is the UK?
Kiernan Dewsbury-Hall: England 'disappointment' fuels midfielder's Everton heroics
📅 06.11.2026 👁️ 3
Kiernan Dewsbury-Hall: England 'disappointment' fuels midfielder's Everton heroics
Kiernan Dewsbury-Hall responds to his England omission by scoring a stunning goal to inspire Everton's 3-1 comeback victory over Coventry City.
Trump skiptir um starfsmannastjóra Hvíta hússins
📅 06.11.2026 👁️ 2
Trump skiptir um starfsmannastjóra Hvíta hússins
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað Stephen Miller starfsmannastjóra Hvíta hússins frá og með mánudeginum. Forsetinn tilkynnti um þetta í færs...
Sam­þykktu van­traust á hendur stjórn­endum Cornell - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Sam­þykktu van­traust á hendur stjórn­endum Cornell - Vísir
Bandarískir miðlar greina frá en konan, sem fer undir nafninu Jane Doe í fjölmiðlum, höfðaði einkamál gegn Cornell og bræðrafélaginu Chi Phi. Málið va...
With Stephen Miller pick, Trump readies for a battle
📅 06.11.2026 👁️ 2
With Stephen Miller pick, Trump readies for a battle
The US president's promotion of Miller, a loyal partisan firebrand to be his new chief of staff sets up likely clashes with Congress.