Belarús stóð fyrir heræfingum nálægt vesturlandamærum sínum að Evrópusambandinu í vikunni, að því er varnarmálaráðuneyti landsins greindi frá á samfélagsmiðlum.
Æfingarnar vörðu frá þriðjudegi til föstudags.
Spenna hefur aukist milli Rússlands og Evrópu vegna stríðsins í Úkraínu. Belarús er eitt helsta bandalagsríki Rússa. Ríkið stendur reglulega fyrir heræfingum, stundum í samstarfi við Rússland.
Ráðuneytið sagði æfingarnar, sem fóru að hluta til fram á svæðum sem liggja að Póllandi og Litháen, einungis vera af varnarlegum toga.