Dísilverðið hækkaði í Frakklandi í dag og hefur aldrei verið hærra. Lítrinn kostaði að meðaltali 2,41 evru í morgun, samkvæmt útreikningum franska viðskiptaráðuneytisins. Það jafngildir 337 krónum.
Gamla metið fékk ekki að standa lengi. Það var sett í gær.
Eldsneytisverð hefur hækkað mikið vegna stríðsins í Miðausturlöndum, milli Írans og Bandaríkjanna.