Ungt jafnaðarfólk skorar á meirihlutann í Reykjavík að afturkalla niðurskurð í þjónustu við börn og ungmenni og kallar jafnframt eftir því að ríkisstjórnin leiði þjóðarátak í velferð.
Ljúka skuli vinnu við fyrstu ungmennastefnu Íslands, sem sé stórt skref en því þurfi að fylgja aðgerðir. Þetta er hluti stjórnmálaályktunar sem samþykkt var á landsþingi Ungs jafnaðarfólks sem haldið var dagana um helgina.
Borgarstjórn er einnig hvött til að bæta lýðheilsu. „Á sama tíma og fréttist af hnignandi niðurstöðum í PISA-könnunum og versnandi líðan ungmenna virðist meirihlutinn í Reykjavíkurborg hafa einbeittan vilja til að gera vont ástand verra.“