Rannsókn er hafin á tildrögum þess að stöðva þurfti umferð um alþjóðaflugvöllinn í Lúxemborg tímabundið á föstudagskvöldið vegna flugs óþekktra dróna. Forsætisráðherrann Luc Frieden segir landið standa frammi fyrir nýrri áskorun, flugi stórra dróna sem ekki sé vitað hvaðan koma, innan lofthelginnar.
„Við höfðum orðið slíkra ferða vart síðustu daga sem lyktaði svo með þessari öryggisráðstöfun á föstudagskvöldið,“ sagði Frieden á blaðamannafundi í gær. Nítján flugvélum var beint annað meðan á lokuninni stóð sem varði til að ganga tvö aðfaranótt laugardags.
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að sönnunargögn skorti enn fyrir afgerandi niðurstöðum um hvaðan flygildin komu. „Þar til bær yfirvöld halda áfram að greina þær upplýsingar sem liggja fyrir og rannsaka málið í samvinnu við nágrannaríkin,“ segir í yfirlýsingunni.