Að minnsta kosti tvennt var drepið í umfangsmikilli drónaárás Úkraínuhers á rússnesku höfuðborgina Moskvu í nótt. Það voru kona á fimmtudagsaldri og roskinn karlmaður, hvort á sínu landsvæðinu, að sögn hermálayfirvalda. Stór olíuhreinsistöð skemmdist í árásinni og koma þurfti um fjögurhundruð íbúum fjölbýlishúss í borginni á brott eftir að eldur kviknaði.
Tæplega fertug kona og tvö börn voru drepin í drónaárás Rússlandshers á þorpið Hlevakha nærri úkraínsku höfuðborginni Kyiv í nótt. Kyiv Independent hefur eftir lögreglu að annað barnið sé tveggja ára sonur konunnar en ekkert liggur enn fyrir um skyldleika hennar við hitt barnið, sem var þriggja ára stúlka.
Borgarstjórinn í Moskvu, Sergei Sobyanin, sagði árásina fordæmalausa og að yfir 1.600 drónar hefðu verið skotnir niður, þar af 450 sem beint var að höfuðborginni.
Hann sakar Úkraínumenn um að vilja trufla kosningar til Dúmunnar sem hófust á föstudag og lýkur í dag. Úkraínumenn hafa hert mikið á drónaárásum gegn Rússlandi síðustu mánuði og beinir þeim ekki síst að orkuinnviðum landsins.
Tilgangurinn er að skaða olíu- og gasframleiðslu sem er ein helsta tekjulind Rússa og knýr áfram stríðsvélarnar í Úkraínu. Tæp vika er síðan Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði stríðandi fylkingar hafa fallist á að hætta árásum á orkuinnviði hvor annarrar.
Kosningarnar um helgina eru þær fyrstu frá því rússneskar hersveitir réðust inn í Úkraínu í febrúar 2022.
Þótt fáir Rússar efist um enn einn sigur flokks forsetans Vladimírs Pútín segja greinendur niðurstöðuna geta orðið mælikvarða á stuðning við stríðsreksturinn. Einungis stjórnmálaflokkum sem styðja stríðið og Pútín var leyft að gefa kost á sér. Auk Rússlands er kosið á hernumdum svæðum í Úkraínu.