Fjöldi fólks er nú saman kominn í Landeyjafjöru til að tína rusl úr fjörunni sem rekið hefur á land en í dag er alþjóðlegi hreinsunardagurinn, „World Cleanup Day“. Verkefnið er unnið í samstarfi við Bláa herinn.
Hreinsunin hófst klukkan 10:00 í morgun og stendur til klukkan 16:00 í dag. Mæting er í Landeyjahöfn þar sem fólk fer síðan með bílum í sérstök hreinsunarhólf í fjörunni. Blái herinn stendur fyrir hreinsuninni og skipulagningu hennar en Sigurmundur Páll Jónsson er markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings eystra og veit allt um hreinsunardaginn.
„Það er auðvitað ýmislegt sem rekur á fjörur og þar á meðal mikið af plasti og netadræsum og svoleiðis. Svo er ýmislegt skemmtilegt sem finnst líka. Það var til dæmis bauja sem fannst frá Háskólanum í Wasington í Bandaríkjunum þar sem vísindamaður þar var að mæla ölduhæð og hún fannst og rak á fjörur hjá okkur. Þannig að það er ýmislegt merkilegt sem finnst líka,“ segir Sigurmundur.
Sigurmundur hvetur íbúa Rangárþings eystra og aðra til að taka þátt í hreinsunarátakinu og leggja umhverfinu lið. Þetta sé gott tækifæri til að eiga góðan dag utandyra, sinna mikilvægu verkefni í nærumhverfinu og jafnvel rekast á fleiri óvænta hluti sem hafið skilar á land. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Bláa hersins.