Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson greinir frá opinberu bréfi sínu til Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Í bréfinu mótmælir hann notkun apps við lestrarkennslu barna. Appið sem um ræðir, Læsir, sé ekkert annað en samfélagsmiðill í boði og á vegum hins opinbera á sama tíma og skaðsemi notkunar barna á samfélagsmiðlum verði sífellt augljósari.
Jóhannes Haukur birtir opið bréf til Ingu Sæland: „Ég bara get ekki sætt mig við þetta“