„Arnarfell varð fyrir vélabilun um helgina sem hefur gert það að verkum að skipið er nú í drætti til Runavíkur í Færeyjum til viðgerðar,“ skrifar Ágústa Hrund Steinarsdóttir, forstöðumaður á markaðs- og samskiptadeildar Samskipa, í svari við fyrirspurn Vísis.
Hún tekur fram að öryggi áhafnar og skips hafi aldrei verið í hættu.
Arnarfell flytur vörur á milli Íslands og Evrópu og getur flutt rúmlega 900 tuttugu feta gámaeiningar.
„Orsök bilunarinnar er þekkt og varahlutir eru til staðar, þannig að vonir standa til að viðgerð taki stuttan tíma,“ bætir hún við.
Af MarineTraffic að dæma virðist skipið hafa stöðvar för er það var mitt á milli Færeyja og Hjaltlandseyja. Samkvæmt sama vef virðist færeyska fiskiskipið Gøtunes draga Arnarfell í land en Arnarfell siglir undir færeyskum fána og á heimahöfn í Þórshöfn.