Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið tvær tilkynningar um að menn hafi elt börn í Árbæ.
Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að tilkynningarnar hafi borist frá foreldrum í gegnum vef lögreglunnar. Hjördís segir að rætt hafi verið við foreldrana og að málið sé í vinnslu.
Vísir greindi frá því að foreldrar í Árbæ hefðu hafið skipulagt foreldrarölt í hverfinu vegna málsins.