Þjóðverjar gengu að kjörborðinu í dag í tveimur af þeim sextán sambandslöndum sem mynda þýska ríkið. Þó að bæði sambandslöndin eigi það sameiginlegt að þar fagna flokkarnir á jöðrum þýskra stjórnmála sigri hallast fólk til sitt hvorrar áttar í löndunum tveimur.
Í Meclenburg-Vestur Pommeraníu hlaut hægri jaðarflokkurinn Valkostur fyrir Þýskaland, AfD, 37 til 38 prósenta fylgi samkvæmt útgönguspám og virðist því hafa skákað Jafnaðarmönnum sem stærsti flokkurinn í fylkinu. Jafnaðarmenn fengu 35 til 37 prósent.
Í Berlín var það flokkurinn á hinum enda hins pólitíska litrófs sem kjósendur fylktu sér helst um. Vinstri jaðarflokkurinn Die Linke hlaut 25-26 prósent atkvæða og er öllu stærri en Kristilegir demókratar og Valkostur fyrir Þýskaland sem koma næstir.
Úrslitin eru mikið áfall fyrir Friedrich Merz, kanslara Þýskalands. Sérstaklega í Mecklenborg-Vestur-Pommeraníu þar sem flokkur hans, Kristilegir demókratar, beið afhroð og mælist rétt fyrir ofan fimm prósenta mörkin sem ráða því hvort flokkar fái kjörna fulltrúa eða ekki. Merz segist þó ætla að sitja sem fastast.
Valkostur fyrir Þýskaland fagnar góðum kosningum en litlar líkur eru á að sá flokkur komist til valda í sambandslöndunum tveimur.