Útlit er fyrir leiðindaveður í fyrramálið með hvassviðri og rigningu. Veðurstofan spáir suðaustan 13 til 20 metrum á sekúndu og verður hvassast syðst á landinu. Þar gæti jafnvel orðið enn hvassara um tíma og vindurinn því af stormstyrk.
Veðurstofan varar við því að vindurinn geti orðið varasamur fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Þetta á einkum við syðst á landinu. Veðurstofan segir líka hyggilegt að huga að lausamunum utandyra, einkum suðvestanlands.
Vindurinn verður hóflegri norðan til á landinu.