Vonar að „Evrópu­sam­bands­blætið“ renni af for­ystu ríkis­stjórnarinnar - Vísir

Vonar að „Evrópu­sam­bands­blætið“ renni af for­ystu ríkis­stjórnarinnar - Vísir

Vonar að „Evrópu­sam­bands­blætið“ renni af for­ystu ríkis­stjórnarinnar - Vísir

Ása Berglind segir það risatíðindi að það sé verið að leggja fram hallalaus fjárlög í fyrsta skipti í um áratug. Frumvarpið eigi eftir að fara í gegnum þinglega meðferð og niðurstaðan velti á rekstri fyrirtækja og afkomu.

Páll Guðmundsson þáttastjórnandi í Sprengisandi bendir á að í fyrra hafi verið lagt upp með fimmtán milljarða halla, sem endaði í um 30 milljarða halla í endanlegum fjárlögum, eftir meðferð þingsins. Í dag stefni svo í um 67 milljarða halla. Spurð hvort markmiðin um afganginn núna séu trúanleg segist Ása Berglind hafa mikla trú. Það séu allir að róa að þessu sama marki.

„Það er til mikils að vinna því að vaxtakostnaðurinn sem ríkið er að bera núna er gríðarlega hár. 168 milljarðar eru núna að fara í vaxtakostnað sem er peningur sem við getum þá ekki verið að nýta í að byggja upp okkar innviði, heilbrigðiskerfi og skólakerfi. Við verðum að finna leiðir til að loka þessu og markmiðið er skýrt og við verðum auðvitað að byrja á að hafa markmið í lífinu,“ segir hún.

Ása Berglind segir stöðu ríkisstjórnarinnar sterka. Vísir/Bjarni

Vaxtakostnaður ósjálfbær

Sigríður segir gott að vera bjartsýnn en hún geti ekki alveg tekið undir með Ásu Berglindi. Markmið ríkisstjórnar um hallalaus fjárlög byggi á óskhyggju og það veki athygli hennar að Ása Berglind vísi til þess að það velti á því hvernig fyrirtækjum gangi hvort stjórnvöld nái þessu markmiði.

„Þetta veltur allt á því hvernig þeim eigi að ganga og hvernig þeim mun takast að skila skattpeningum, skatttekjum, inn í ríkissjóð til þess að standa við þetta. Þetta er svona smá ádráttur um það að þeim verði síðan kennt um þegar illa fer og ekki næst að loka þessu blessaða gati,“ segir Sigríður.

Hún geti þó tekið undir, og hafi bent á það um árabil, að vaxtatekjur ríkisins séu algjörlega ósjálfbærar og það verði að ráða bót á því.

„Borga niður skuldir. En þessi ríkisstjórn hefur gert allt annað en að reyna að gera það.“

Sigríður segist ekki bjartsýn á að ríkisstjórnin nái þessu markmiði. Það sé til dæmis gert ráð fyrir 44 milljörðum í lækkun útgjalda og hátt í helmingur af því séu ónýttar fjárheimildir. Þetta sé ekkert annað en „bókhaldsfiff“.

„Þannig að þetta er ekki nógu gott og á sama tíma, og að minnsta kosti fjármálaráðherra talar mjög fyrir aðhaldi og ég er full af samúð með honum og hans sjónarmiðum og styð sjónarmið hans, koma forystumenn ríkisstjórnarinnar og tala um að auka útgjöldin.“

Sigríður segir loforð um eingreiðslu til bótaþega ofan á desemberuppbót dæmi um slík útgjöld. Þá eigi að hækka bætur um 7,5 prósent sem sé langt umfram það sem samið er um á almennum vinnumarkaði.

„Þannig að þetta stefnir ekki í rétta átt.“

Umfangsmeiri aðhaldsaðgerðir

Ása Berglind segir þetta ekki rétt og bendir á að nú eigi að innleiða umfangsmeiri aðhaldsaðgerðir á útgjaldahlið ríkisins. Hún nefnir því til stuðnings sameiningu stofnana og niðurlagningu ráðuneyta og að launahækkanir ráðamanna eigi ekki að vera eins miklar og áætlað hafði verið. Þá eigi að segja upp fólki í stjórnsýslu en verja framlínustörf. Uppsagnir voru, sem dæmi, í dómsmálaráðuneytinu í liðinni viku.

Sigríður segir nokkrar uppsagnir í ráðuneytum ekki skipta endilega öllu í stóra samhenginu og segir að frekar eigi að byrja á því að skoða löggjöf þar sem farið er yfir verkefni ríkisins og slá einhver þeirra af.

„Öðruvísi draga menn ekki úr útgjöldum.“

Ása Berglind segir það í skoðun en bendir á að ríkisstjórnin hafi tekið við búinu með risavaxna innviðaskuld, til dæmis í samgöngukerfinu, heilbrigðiskerfi og menntakerfi, og það þurfi að takast á við það.

„Við verðum að halda áfram að reka samfélagið þó að við séum að reyna að taka til á sama tíma og mér finnst það bara aðdáunarvert hjá ríkisstjórninni að ná að bæta í og bæta upp í þessar innviðaskuldir á sama tíma og hún er að skila fjárlagafrumvarpinu með þessum hætti.“

Páll spurði að því loknu um bókun 35 og afdrif hennar í þinginu. Sigríður segir að ef mælt verður fyrir málinu í þinginu muni Miðflokkurinn tala málefnalega fyrir því líkt og hann hefur áður gert. Hún voni að við þinglega meðferð verði „Evrópusambandsblætið“ runnið af forystukonum ríkisstjórnarinnar.

„… og menn aðeins farnir kannski vonandi að sjá hlutina í meira samhengi og hlusta kannski svolítið líka á þjóðina sem sendir auðvitað þau skilaboð í þjóðaratkvæðagreiðslunni um að þjóðkjörnum fulltrúum beri að hafa hagsmuni þjóðarinnar bara að leiðarljósi.“

Hún segir samþykkt bókunarinnar kalla á breytingu á stjórnarskrá og það sé ekki þörf á að gera þetta. Hún segist ekki hafa áhyggjur af því hvað kæmi úr EFTA-dómstólnum og það sé eðlileg leið þegar upp kemur ágreiningur um EES-samninginn að leita þangað.

Ómaklegt að tengja bókunina við þjóðaratkvæðagreiðsluna

Ása segir ómaklegt að setja málið í samhengi við þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um aðild sem fór fram í ágúst. Hún segir það hafa legið fyrir um árabil að skerpa þurfi á málinu. Málið snúist um réttindi og skyldur Íslendinga. Hún tók svo dæmi um stúlku sem slasaðist eftir að hafa keypt sælgæti og gat ekki sótt skaðabætur til framleiðanda vegna þess að bókunin var ekki innleidd. Annað dæmi sé svo læknir sem flutti heim til Íslands og átti lakari rétt til fæðingarorlofs á Íslandi en í Danmörku vegna þess að bókunin var ekki innleidd.

Sigríður segir mikilvægt að huga að því að réttindi fólks sem flytur hingað geti vegist á við réttindi skattgreiðenda á Íslandi og það þurfi að vega og meta og þetta snúist um það hvaða reglur eigi að vera um aðgang að kerfum Íslendinga.

„Af því að allt snýst þetta um það að Íslendingar og íslenski löggjafinn vilja hafa síðasta orðið þegar kemur að því að ákvarða hverjir eiga rétt úr bótakerfi, almannatryggingakerfinu hér á landi. Í tengslum við EES-samninginn höfum við skuldbundið okkur að einhverju leyti til þess að færa þessi réttindi á milli,“ segir hún og að réttindi einstaklinga geti vegið á móti réttindum þeirra sem halda einhverju ákveðnu kerfi uppi, líkt og fæðingarorlofssjóði.

„Þetta er bara tæknilegt en meginatriðið er þetta: bókun 35, hún snýst ekki um að veita Íslendingum tiltekin réttindi, ekki bara það, vegna þess að þeim réttindum geta líka fylgt kvaðir á almenning, á einstaklinga og fyrirtæki.“

Ása Berglind segir þverpólitíska samstöðu um málið þó svo að Miðflokkurinn styðji það ekki og hún telji ekki stemningu í samfélaginu fyrir málþófi Miðflokksmanna.

Verði dæmd af verkum sínum

Við lok þáttar ræddu þau svo almennt um pólitíska stöðu og ríkisstjórnar. Ása Berglind segir stöðu ríkisstjórnarinnar sterka.

„Kannanir sýna að um helmingur þjóðarinnar styður ríkisstjórnina og ég held að margir hafi einmitt farið í þessa þjóðaratkvæðagreiðsluvegferð í þeim tilgangi að reyna að veikja þessa ríkisstjórn en þeim tókst það nú ekki, því að við komum bara mjög sterk og samstíga út úr þessu verkefni í sumar,“ segir hún og þó svo að niðurstaðan hafi verið nei hafi ríkisstjórnin með atkvæðagreiðslunni verið að uppfylla loforð um að spyrja þjóðina úr sínum stjórnarsáttmála.

„Það hefur gengið bara virkilega vel hjá þessari ríkisstjórn að vinna samkvæmt þeim markmiðum sem hún setti sér í upphafi.“

Sigríður segir ríkisstjórnina verða dæmda af verkum sínum, sem hafi hingað til einna helst tengst Evrópusambandinu.

„… fóru í þetta gönuhlaup með þjóðaratkvæðagreiðsluna. Nú er það búið og þá er næsta mál á dagskrá hjá þeim sem er bókun 35 og ég held að ríkisstjórninni væri hollast að einbeita sér að efnahagsmálunum í þennan vetur og næsta en ekki þessari endalausu utanríkispólitík sem hún hefur verið að fara í.“

#evrópusambandsblætið #forystu #renni #ríkisstjórnarinnar #vonar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262937331d/vonar-ad-evropusambandsblaetid-renni-af-forystu-rikisstjornarinnar

📰 Aðrar fréttir

Fyrrum Bond-stúlka segir að næsti 007 verði að vera „annar glæsilegur maður“
📅 20.09.2026 👁️ 1
Fyrrum Bond-stúlka segir að næsti 007 verði að vera „annar glæsilegur maður“
Leitin að næsta 007 er löngu hafin og hafa mörg nöfn verið nefnd undanfarna mánuði. Fyrrum Bond-stúlkan Alison Papworth hefur sína skoðun á næsta Bond...
Kvartanir um framferði lögreglustjóra á borði héraðssaksóknara
📅 20.09.2026 👁️ 1
Kvartanir um framferði lögreglustjóra á borði héraðssaksóknara
Tveimur kvörtunum sem bárust nefnd um eftirlit með lögreglu vegna Helga Jenssonar, lögreglustjóra á Vestfjörðum, í vor var vísað til héraðssaksóknara....
Trump og Zelenski hittast í New York
📅 20.09.2026 👁️ 1
Trump og Zelenski hittast í New York
Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, greindi frá því í dag að hann og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ætli að ræða saman í New York á næstu dögum...
Hólmarnir í Tjörninni fá and­lits­lyftingu - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 1
Hólmarnir í Tjörninni fá and­lits­lyftingu - Vísir
Var verkefnið kynnt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs á dögunum en meðal þess sem fram kemur í fundargerðinni um málið er að verkefnið sé unnið af t...
Fagnar því að ferðaþjónustufyrirtæki vinni saman að öryggismálum
📅 20.09.2026 👁️ 1
Fagnar því að ferðaþjónustufyrirtæki vinni saman að öryggismálum
Formaður nýs fagráðs um öryggismál á Sólheimajökli fagnar því að ferðaþjónustufyrirtæki vinni saman til að tryggja öryggi allra. Veðurstofan varaði vi...
Loksins vinir eftir að hann eyðilagði hjónabandið – „Ég vil hana aftur“
📅 20.09.2026 👁️ 2
Loksins vinir eftir að hann eyðilagði hjónabandið – „Ég vil hana aftur“
Karlmaður leitar til kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun, Dear Deidre. Fyrir áratug hélt hann framhjá eiginkonu sinni til 20 ára í vinnuferð.Maðurinn...
Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 2
Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg - Vísir
Er þetta meðal þess helsta sem skráð var í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan fimm í morgun og þar til klukkan 17:00 en í það mi...
Enn aukast vandræði kanslarans
📅 20.09.2026 👁️ 2
Enn aukast vandræði kanslarans
Þjóðverjar gengu að kjörborðinu í dag í tveimur af þeim sextán sambandslöndum sem mynda þýska ríkið. Þó að bæði sambandslöndin eigi það sameiginlegt a...
Vildu losna við list sem væri Trump ekki að skapi
📅 20.09.2026 👁️ 2
Vildu losna við list sem væri Trump ekki að skapi
„Þú getur alveg byrjað að endursenda dót aftur til landanna sem gáfu það. Finndu út hvað þú vilt ekki og sendu það til baka eins fljótt og hægt er,“ s...
Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 2
Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ - Vísir
Allir stærstu slagarar sveitarinnar voru teknir á tónleikunum en meðal þeirra má nefna lagið Stick 'Em up af plötunni Jinx sem kom út árið 2002. Þá vo...
Burnham hails Greenland deal ahead of first Trump meeting in US
📅 20.09.2026 👁️ 1
Burnham hails Greenland deal ahead of first Trump meeting in US
While Burnham praised the agreement, Lib Dem leader Ed Davey called it a "pretend" victory for Trump.
Alveg skýrt að kjarasamningum verður sagt upp ef SA býður engar leiðréttingar
📅 20.09.2026 👁️ 2
Alveg skýrt að kjarasamningum verður sagt upp ef SA býður engar leiðréttingar
Formaður VR segir alveg skýrt að ef Samtök atvinnulífsins bjóði engar leiðréttingar fyrir launafólk verði kjarasamningum sagt upp.Forsendur kjarasamni...
Orðið á götunni: Landsvirkjun sjái um vindmyllur – ekki kúrekarnir og labbakútarnir
📅 20.09.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Landsvirkjun sjái um vindmyllur – ekki kúrekarnir og labbakútarnir
Nú eru allir og mögulega ömmur þeirra líka á fullu við að undirbúa vindmyllugarða á Íslandi. Það er skiljanlegt. Vindurinn er nokkuð sem við Íslending...
Tvær tilkynningar um menn að elta börn í Árbæ
📅 20.09.2026 👁️ 2
Tvær tilkynningar um menn að elta börn í Árbæ
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið tvær tilkynningar um að menn hafi elt börn í Árbæ.Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn segi...
Kelsey Parker welcomes baby after 'devastating' stillbirth
📅 20.09.2026 👁️ 2
Kelsey Parker welcomes baby after 'devastating' stillbirth
The widow of The Wanted singer Tom Parker has given birth after last year announcing the "devastating" loss of a stillborn baby.
German Chancellor Merz vows to stay on despite 'disaster' in state election
📅 20.09.2026 👁️ 2
German Chancellor Merz vows to stay on despite 'disaster' in state election
Exit polls show damaging losses for Merz's centre-right CDU party in the states of Berlin and Mecklenburg-Vorpommern.
German state elections: Chancellor Friedrich Merz vows to stay on despite 'disaster' in polls
📅 20.09.2026 👁️ 1
German state elections: Chancellor Friedrich Merz vows to stay on despite 'disaster' in polls
Exit polls show damaging losses for Merz's centre-right CDU party in the states of Berlin and Mecklenburg-Vorpommern.
Fá engin svör frá ráð­herra og segja matvælaöryggi undir - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 2
Fá engin svör frá ráð­herra og segja matvælaöryggi undir - Vísir
Fyrir fjórum árum fluttist starfsemi Garðyrkjuskólans frá Landbúnaðarháskóla Íslands til Fjölbrautarskóla Suðurlands. Við þá breytingu átti fjármagn a...
Hvasst í fyrramálið – gott að huga að lausamunum utandyra
📅 20.09.2026 👁️ 2
Hvasst í fyrramálið – gott að huga að lausamunum utandyra
Útlit er fyrir leiðindaveður í fyrramálið með hvassviðri og rigningu. Veðurstofan spáir suðaustan 13 til 20 metrum á sekúndu og verður hvassast syðst ...
Leita leiða til að koma í veg fyrir að P-kortahafar séu rukkaðir
📅 20.09.2026 👁️ 2
Leita leiða til að koma í veg fyrir að P-kortahafar séu rukkaðir
Fyrirtækin sem sjá um gjaldtöku á einkareknum bílastæðum gætu fengið upplýsingar um handhafa stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða til að tryggja að þeir ve...
Fleiri her­stöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Ís­lendinga - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 2
Fleiri her­stöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Ís­lendinga - Vísir
Í kjölfar tíðinda um samkomulagið hafa toppar í stjórnmálum víða um heim og í viðskiptalífinu í Danmörku flestallir sagt þetta góðar fréttir fyrir rík...
Princess Diana: My Sister’s Story
📅 20.09.2026 👁️ 3
Princess Diana: My Sister’s Story
In this UK exclusive, Laura Kuenssberg interviews Earl Spencer after explosive new revelations in his latest book about his sister, Diana, Princess of...
More than 10,000 take to the streets for bike festival in Gran Canaria
📅 20.09.2026 👁️ 3
More than 10,000 take to the streets for bike festival in Gran Canaria
More than 10,000 people took part in the Fiesta de la Bici in Las Palmas de Gran Canaria earlier today, Sunday, turning streets normally dominated by ...
Birtir ógnvekjandi skilaboð á samfélagsmiðlum vikum eftir að hafa deilt áfallastreituröskun
📅 20.09.2026 👁️ 3
Birtir ógnvekjandi skilaboð á samfélagsmiðlum vikum eftir að hafa deilt áfallastreituröskun
Leikkonan Kate Beckinsale birti ógnvekjandi skilaboð á samfélagsmiðlum vikum eftir að hafa deilt hjartnæmum skilaboðum um að takast á við áfallastreit...
Björn Jón skrifar: Atvinnumennskan er meinsemd stjórnmálanna
📅 20.09.2026 👁️ 3
Björn Jón skrifar: Atvinnumennskan er meinsemd stjórnmálanna
Mynd Ég sá í Mogganum í gær að þess var minnst að liðin eru 83 ár frá fæ
Lík­lega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 3
Lík­lega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kristjáni Loftssyni, forstjóra Hvals. Hvalveiðitímabilið fer jafnan fram yfir sumarmánuðina og lýkur oftast í septe...
Hvalveiðivertíðinni lokið
📅 20.09.2026 👁️ 3
Hvalveiðivertíðinni lokið
Hvalveiðivertíðinni er lokið í ár og veiddust 93 langreyðar á 94 dögum, segir Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. í skriflegu svari við fyrirspurn f...
Segja umdeilda lagabreytingu veita „leyfi til að drepa“
📅 20.09.2026 👁️ 3
Segja umdeilda lagabreytingu veita „leyfi til að drepa“
Þúsundir söfnuðust saman á götum Parísar í dag til að mótmæla fyrirhuguðum lögum um valdbeitingu lögreglu og öryggisstarfsmanna – sem gagnrýnendur haf...
Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 3
Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts - Vísir
Emmanuel Macron Frakklandsforseti heimsækir í dag Sankti Pierre og Miquelon, sem er eyjaklasi og franskt yfirráðasvæði undan Atlantshafsströnd Kanada,...
Key takeaways from BBC interview as Earl Spencer defends claims about King
📅 20.09.2026 👁️ 3
Key takeaways from BBC interview as Earl Spencer defends claims about King
Earl Spencer speaks to the BBC's Laura Kuenssberg ahead of the publication of his book about his sister Diana, Princess of Wales.
Nú steinhættir þú að hengja upp buxurnar þínar svona – Prófaðu þetta í staðinn
📅 20.09.2026 👁️ 4
Nú steinhættir þú að hengja upp buxurnar þínar svona – Prófaðu þetta í staðinn
Þvottaráð dagsins kemur frá TikTok-síðu Milt en það hefur slegið rækilega í gegn á miðlinum.Milt deilir sniðugri aðferð til að hengja upp buxur á þvot...
Earl Spencer says he felt Charles had 'giddy tone' during call after Diana's death
📅 20.09.2026 👁️ 4
Earl Spencer says he felt Charles had 'giddy tone' during call after Diana's death
Princess Diana's brother has been interviewed by the BBC ahead of the release of his book on the late Princess of Wales.
'This is my final word, celebration of her', says Diana's brother
📅 20.09.2026 👁️ 3
'This is my final word, celebration of her', says Diana's brother
"This is my swan song too. I'm not here to bang on about Diana, this is my final word, celebration of her", Earl Spencer told presenter Laura Kuenssbe...
Ferjuðu 1.799 steina upp Himnastigann
📅 20.09.2026 👁️ 3
Ferjuðu 1.799 steina upp Himnastigann
Fjöldi fólks á öllum aldri tók þátt í að ferja 1.799 steina upp himnastigann í Kópavogi í dag fyrir Píeta samtökin. Með þessu vildu samtökin vekja ath...
Kosningalög ekki besta verkfærið til að verja byggð í landinu
📅 20.09.2026 👁️ 4
Kosningalög ekki besta verkfærið til að verja byggð í landinu
Forseti Alþingis hefur fengið erindi frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um að skipuð verði þingmannanefnd til að fjalla um tillögu...
Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á ein­hverju sem var aldrei  
vanda­mál“ - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 4
Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á ein­hverju sem var aldrei vanda­mál“ - Vísir
Jóhannes Haukur er þriggja barna faðir og segir í færslu á Facebook, þar sem hann deilir bréfinu, að hann hafi látið það yfir sig ganga þegar miðjubar...
Náum verð­bólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 4
Náum verð­bólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér - Vísir
Í apríl 2026 tilkynnti Kópavogsbær að takmarkanir yrðu settar á gjaldskrárhækkanir gagnvart barnafjölskyldum. Gjaldskrárnar myndu ekki hækka meira en ...
Uppsagnir, óvissa og fátt um svör frá ríkinu
📅 20.09.2026 👁️ 4
Uppsagnir, óvissa og fátt um svör frá ríkinu
Heilbrigðisfulltrúar landsins eru 76 og eru ráðnir hjá sveitarfélögum. Eftirlit með matvælum, hollustuháttum og mengunarvörnum sem er á hendi heilbrig...
Hættulegra að fæða sveinbörn
📅 20.09.2026 👁️ 4
Hættulegra að fæða sveinbörn
Niðurstöður rannsóknar tveggja vísindamanna gefa til kynna að mæður eigi erfiðara með að eignast sveinbörn en meybörn. Það er meðal annars vegna þess ...
Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 3
Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul - Vísir
Vijona fæddist í Litáen og flutti til Íslands aðeins þriggja ára gömul. Fyrstu árin hér einkenndust af rótleysi, fátækt og ofbeldi og um tíma dvöldu þ...
Inga Sæland: Stjórnarandstaðan hefur enga tilfinningu fyrir einu eða neinu og veður í villu og svima
📅 20.09.2026 👁️ 4
Inga Sæland: Stjórnarandstaðan hefur enga tilfinningu fyrir einu eða neinu og veður í villu og svima
Síðasta ríkisstjórn jók ríkisskuldir um 866 milljarða á sjö árum og ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur fékk þá skuldasöfnun í fangið. Samstaðan í þes...
Jóhannes Haukur birtir opið bréf til Ingu Sæland: „Ég bara get ekki sætt mig við þetta“
📅 20.09.2026 👁️ 4
Jóhannes Haukur birtir opið bréf til Ingu Sæland: „Ég bara get ekki sætt mig við þetta“
Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson greinir frá opinberu bréfi sínu til Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Í bréfinu mótmælir hann notkun ap...
Indversk stjórnvöld sökuð um að breiða út veganisma á BRICS fundi – Sjáðu matseðilinn
📅 20.09.2026 👁️ 4
Indversk stjórnvöld sökuð um að breiða út veganisma á BRICS fundi – Sjáðu matseðilinn
Ríkisstjórn Indlands og forsætisráðherrann Narendra Modi hafa verið sökuð um að breiða út veganisma á BRICS leiðtogafundinum um helgina. Í kvöldmatinn...
Inngilding verður að ná til allra – ekki bara þeirra sem hrópa hæst
📅 20.09.2026 👁️ 4
Inngilding verður að ná til allra – ekki bara þeirra sem hrópa hæst
Inngilding verður að ná til allra – ekki bara þeirra sem hrópa hæst Fréttin20. september 2026Erlent, Helga Dögg Sverrisdóttir, SkólamálLeave a Comment...
Trump says his triumphal arch will become a military ammunition complex
📅 20.09.2026 👁️ 2
Trump says his triumphal arch will become a military ammunition complex
Trump said the updated plans were at the request of the US military and for national security purposes.
Trump says triumphal arch will be military complex
📅 20.09.2026 👁️ 2
Trump says triumphal arch will be military complex
Trump said the updated plans were at the request of the US military and for national security purposes.
Sex dögum eftir að Úkraína samþykkti að hætta árásum á rússneskar olíuhreinsistöðvar – fremur hún árás á Kapotnya-hreinsistöðina í Moskvu
📅 20.09.2026 👁️ 4
Sex dögum eftir að Úkraína samþykkti að hætta árásum á rússneskar olíuhreinsistöðvar – fremur hún árás á Kapotnya-hreinsistöðina í Moskvu
Sex dögum eftir að Úkraína samþykkti að hætta árásum á rússneskar olíuhreinsistöðvar – fremur hún árás á Kapotnya-hreinsistöðina í Moskvu Fréttin20. s...
Major police operation in the Golden Mile and Veronicas
📅 20.09.2026 👁️ 4
Major police operation in the Golden Mile and Veronicas
A major police operation involving several different specialist units was carried out across the Golden Mile and Las Verónicas in Playa de Las América...
Afi á­kærður fyrir brot gegn barna­barni sínu - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 3
Afi á­kærður fyrir brot gegn barna­barni sínu - Vísir
RÚV greinir frá ákærunni en þar segir að málið hafi verið tekið fyrir í héraðsdómi Reykjavíkur fyrir helgi.  Brotið á að hafa átt sér stað skömmu fyri...
Svíþjóð fær sinn fyrsta „sharia-dómstól“
📅 20.09.2026 👁️ 3
Svíþjóð fær sinn fyrsta „sharia-dómstól“
Svíþjóð fær sinn fyrsta „sharia-dómstól“ Fréttin20. september 2026ErlentLeave a Comment Peter Sweden skrifar: Fyrsti sjálfskipaði „óháði sharia-dómstó...