Tveimur kvörtunum sem bárust nefnd um eftirlit með lögreglu vegna Helga Jenssonar, lögreglustjóra á Vestfjörðum, í vor var vísað til héraðssaksóknara.
Atvikin sem kvartað var undan áttu sér stað á Stútungi, þorrablóti Flateyringa. Önnur kvörtunin fjallaði um meint ofbeldi af hálfu lögreglustjórans. Í hinu erindinu var kvartað undan meintu kynferðislegu áreiti lögreglustjórans sem vísaði að minnsta kosti tvívegis til valds embættis síns.
Héraðssaksóknari tók kvartanirnar til rannsóknar. Þeirri rannsókn lauk í maí. Þá var því vísað til ákærusviðs. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara.
Þótt málið hafi beðið hjá ákærusviði í nokkra mánuði eftir að rannsókn lauk er það ekki óalgengt. Þegar kemur að því að ákvörðun verði tekin eru þrjár leiðir sem málið getur farið. Ákærusvið gæti vísað málinu aftur í rannsókn ef því þykir frekari upplýsingar skorta.
Ef því þykir rannsókninni lokið getur verið að ákæra verði gefin út. Ef málið þykir ekki líklegt til sakfellingar er það fellt niður. Þá verður þeim sem kvörtuðu undan hegðun lögreglustjórans tilkynnt um þá ákvörðun.
Í samtali við fréttastofu í vor sagðist Helgi ekki kannast við að neitt óeðlilegt hafi átt sér stað á þorrablótinu. Hann hafi sagt álit sitt á ákveðnum manni og dansað við konu sem líkaði ekki hvernig hann dansaði.
Hann rak ekki minni til þess að hafa beitt fyrir sig embætti sínu en segir það geta hafa komið fram í spjalli við hvað hann starfi. Þetta kvöld hafi hann þó ekki verið að störfum heldur úti að skemmta sér.
Fjallað var um málið og hvernig farið er með kvartanir fólks vegna starfsfólks lögreglu í Þetta helst. Þáttinn má heyra hér: