Er þetta meðal þess helsta sem skráð var í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan fimm í morgun og þar til klukkan 17:00 en í það minnsta tveir voru vistaðir í fangageymslu á tímabilinu.
Í póstnúmerinu 210 í Garðabæ var ökumaður stöðvaður sem ók vel yfir hámarkshraða en í dagbókinni kemur ekki fram hversu hratt hann ók né hver hámarkshraðinn var á svæðinu. Í Hlíðahverfi í Reykjavík var ekið á kyrrstæðan og mannlausan bíl en málið var afgreitt samkvæmt venju.