Formaður VR segir alveg skýrt að ef Samtök atvinnulífsins bjóði engar leiðréttingar fyrir launafólk verði kjarasamningum sagt upp.
Forsendur kjarasamninga brustu í ágúst þegar verðbólga mældist yfir viðmiðum. Verkalýðsfélögin hafa til 8. október til að segja samningunum upp. ASÍ, SA og ríkisstjórnin eiga í þríhliða viðræðum til að reyna að koma í veg fyrir það.
„Þar eru nú svona einhverjar hugmyndir komnar á blað en það vantar talsvert upp á að mati verkalýðshreyfingarinnar,“ segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR.
„Síðan erum við auðvitað bara í viðræðum, VR, LÍV og fagfélögin, við Samtök atvinnulífsins um kjarasamningana okkar, þetta eru forsendur þeirra sem eru brostnar, og þær viðræður ganga ekkert sérstaklega vel,“ segir Halla.
Hún segir verkalýðsfélögin hafa fundað þrisvar með Samtökum atvinnulífsins og lagt fram leiðréttingartillögur.
„Við höfum ekki fengið nein viðbrögð við því enn sem komið er. Við eigum annan fund með þeim í vikunni og vonumst auðvitað stöðugt til þess að það fari að fara eitthvert merkingarbært samtal í gang,“ segir Halla.
Fyrirtækin ekki líkleg til að grípa til aðgerða og holur hljómur hjá Kópavogsbæ
VR, LÍV og fagfélögin hafa skorað sérstaklega á stærstu fyrirtækin um að standa við stóru orðin um að halda aftur af verðhækkunum. Halla
„Þau flest, í sínum svörum, segjast taka stöðuna alvarlega en það er hins vegar ekkert mjög mikið um það að þau ætli að grípa til einhverra sérstakra aðgerða,“ segir Halla.
Verkalýðsfélögin hafa einnig hvatt sveitarfélögin til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum. Kópavogsbær sendi frá sér yfirlýsingu fyrir helgi þar sem skorað var á opinbera aðila að takmarka hækkanir við 2,5 prósent. Halla gefur lítið fyrir það.
„Sveitarfélög sem hafa farið í fararbroddi um að hækka leikskólagjöld um tugi prósenta og segjast svo ætla að stilla þeim í hóf núna, það er svolítið holur hljómur,“ segir Halla.
Hún segir tímann á þrotum.
„Þetta er bara þung staða. Við erum bara ekki komin með neitt í hendi og það eru 18 dagar sem við höfum núna til þess að ákveða hvort við segjum upp kjarasamningum. Eins og staðan er núna þá er ekkert í hendi sem getur komið í veg fyrir að svo verði.“