Aukning MS-sjúkdómsins rakin til lífsstíls

Bandarískir sérfræðingar vara nú við vaxandi algengi MS-sjúkdómsins og benda á að algengar lífsstílsvenjur ásamt tilteknum vítamínskorti spili þar stórt hlutverk. Samhliða því er vakin athygli á þeim breytingum sem fólk getur gert til þess að minnka líkurnar á sjúkdómnum eða hægja á framgangi hans.
Greiningum á MS-sjúkdómnum fer fjölgandi meðal fólks á miðjum aldri og eldri, en í áratugi var sjúkdómurinn nánast eingöngu tengdur við ungt fólk með erfðafræðilega tilhneigingu. Sérfræðingar lýsa yfir áhyggjum af þessari þróun og segja samspil margra ólíkra þátta valda því að sjúkdómurinn brýst fram síðar á ævinni.
Leikkonurnar Christina Applegate og Selma Blair, sem báðar þurftu að læra að ganga með staf á fimmtugs- og sextugsaldri. Rannsóknir sýna að þetta eru ekki einangruð tilfelli; á Ítalíu ríflega þrefölduðust MS-greiningar meðal fólks á sjötugsaldri á árunum 2005 til 2020, og í Noregi fóru greiningar hjá fólki fimmtugt og eldra úr 2,6% fyrir árið 1970 í tæp 12% eftir árið 2010.
Dropinn sem fyllir mælinn
„Það að þróa með sér MS er ekki eitthvað sem gerist í einu höggi,“ segir Dr. Erin Longbrake, taugasérfræðingur sem sérhæfir sig í MS-sjúkdómnum í frétt á AOL.
„Þetta eru allir litlu steinarnir sem safnast saman á vigtina þar til hún fellur á endanum yfir í sjúkdóm.“
Þótt betri greiningartækni og hækkandi lífaldur skýri hluta af tölfræðinni, telja flestir vísindamenn að raunveruleg aukning sé í gangi. Dr. Rab Nawaz Khan, taugasérfræðingur í Bretlandi, segir að þróunin sé raunveruleg en ómögulegt sé að benda á eina skýringu. Líklegast sé um flókið samspil umhverfis- og lífsstílsþátta að ræða.
Líf Christinu Applegate umturnaðist
Christina Applegate greindist með sjúkdóminn árið 2021, þá 49 ára gömul, við tökur á þáttunum Dead to Me. Hún hafði áður sigrast á brjóstakrabbameini árið 2008 og hélt áfram farsælum ferli sínum samhliða móðurhlutverkinu þar til MS-sjúkdómurinn bankaði upp á.
Sjúkdómurinn ágerðist hratt. Upphafleg einkenni á borð við dofa og jafnvægisleysi þróuðust fljótt yfir í mikinn máttleysi í fótum, taugaverkri, sjóntruflanir og meltingarvegsvandamál. Í sjónvarpsviðtali fyrr á þessu ári ræddi hún opinskátt um sorgina sem fylgir því að missa líkamlega getu sína og leiklistarferilinn.
„Hvar er ég stödd með að sætta mig við þetta? Ég hata þetta,“ sagði Applegate hreinskilnislega um greininguna.
Lífsstílsþættir spila inn í
Samkvæmt nýjum samantektum sérfræðinga getur skortur á D-vítamíni verið einn af helstu áhættuþáttunum sem tengjast auknum fjölda greininga. Auk vítamínskortsins eru lífsstílsþættir á borð við reykingar, offitu og óhollt mataræði sannaðir samverkamenn í því að auka líkur á sjúkdómnum og flýta fyrir versnun hans.
MS er langvinnur bólgusjúkdómur sem leggst á miðtaugakerfið, en sérfræðingar leggja nú ríka áherslu á að hægt sé að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða. ÍAOL kemur fram að með því að huga vel að D-vítamínbúskap líkamans, hætta reykingum og viðhalda heilbrigðu mataræði og þyngd er hægt að draga verulega úr áhættunni og hafa jákvæð áhrif á sjúkdómsferlið.