Forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands vill taka ofsaakstur af götunum og inn í öryggi akstursíþróttafélaga. Með því að auka aðgengi ungs fólks að íþróttinni sé hægt að vinna að forvörnum tengdum hraðakstri.
„Öryggið er allt í akstursíþróttum“
„Það sem við höfum viljað vinna með stjórnvöldum og samfélaginu öllu eru auðvitað forvarnir í sinni ítrustu mynd, af því að íþróttir eru besta forvörnin. Við höfum því miður orðið vitni að hörmulegum atburðum á opnum vegum í ofsaakstri og það er mjög mikilvægt því öryggið er allt í akstursíþróttunum,“ segir Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og ólympíusambandsins.
Þrjú ungmenni létust í lok ágúst eftir að bíll þeirra hafnaði á hraunkletti utan vegar á Krýsuvíkurvegi. Talið er að bíllinn hafi verið á yfir 220 kílómetra hraða. Lögregla rannsakar tildrög slyssins.
Fyrr á þessu ári lést sautján ára piltur í umferðarslysi á Miklubraut. Lögregla segir vísbendingar um að slysið megi rekja til hraðaksturs.
Undanþága er í reglugerð um akstursíþróttir og keppnir þar sem leyfilegt er að víkja frá lágmarksaldri ökumanna við æfingar og keppnir á lokuðum svæðum. Börn geta því tekið þátt í akstursíþróttum en það fer eftir ökutækjum hversu gömul þau þurfa að vera.
„Við getum þar unnið með þjóðfélaginu í forvörnum í þessum málum öllum.“
Vilja auka aðgengi, sérstaklega fyrir ungt fólk
Willum segir að mjög öflugt starf sé unnið hjá Akstursíþróttasambandinu og félögum þess. Hann fylgdist með bikarmóti í rallýkrossi á akstursíþróttasvæði Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar í dag og segir ofuráherslu á öryggi og góða umgengi við ökutækin.
„Þannig að hér viljum við auka aðgengi, fyrir ungt fólk sérstaklega, til að koma inn og vera með. Ekkert síður heldur en að finna sína syllu í íþróttum og tómstundum, sem er auðvitað feikilega öflug forvörn. Því að þarna getum við saman sem samfélag nýtt akstursíþróttirnar til að taka ofasaakstur af götunum og í öryggið inni á brautunum og í félögunum, þar sem fagþekkingin er.“
Margt er til skoðunar hjá ÍSÍ en Willum segir þetta snúast um að lækka hindranir og auka aðgengi.
„Akstursíþróttafélögin eru að vinna mikið með að leyfa ungu fólki að koma og prófa og þá koma þau með bílana sína og þá skipta auðvitað tryggingar miklu máli. Þar koma til viðbótargjöld.“
Willum segir sambandið vinna með akstursíþróttasamfélaginu í þeim málum.
„Vonandi tekst okkur áfram að auka þátttökuna í þessu og vinna þannig með samfélaginu í forvörnum á þessu sviði.“
Stefna ÍSÍ sé að koma fleirum í íþróttir almennt en á þessu sviði sé hægt að gera betur í að auðvelda fólki að æfa akstursíþróttir.
„Þar er öryggið aðalatriðið og umgjörðin lykilatriði, eins og við þekkjum, og þá getum við hjálpast að við að taka á þessum málum. Vegna þess eru auðvitað hörmulegir atburðir sem við höfum fengið að upplifa, því miður.“