Þetta er meðal þess sem kemur fram á vef Veðurstofu Íslands en þar segir að akstursaðstæður geti orðið verulega varasamar í nótt og undir morgun og þá einkum undir Esju, Hafnarfjalli og úti á Reykjanesskaga. Þar geti vindhviður náð allt að þrjátíu og fimm metrum á sekúndu.
Fólki er ráðlagt að huga að hvers kyns lausamunum utandyra en oft og tíðum fara trampólín og heitapottslok á flug í slíku hvassviðri og því skynsamlegt að sjá til þess að allt sé kyrfilega njörvað niður fyrir nóttina.
Búist er við því að austanhvassviðrið taki að lægja um klukkan níu í fyrramálið en fólk í ferðahugleiðingum er hvatt til þess að fylgjast með nýjustu spám og aðstæðum á vegum.