Stormur er syðst á landinu og mjög hvasst víða framan af degi auk þess sem það rignir. Þegar líður á daginn snýst austan- og suðaustanáttin í suðlæga átt og þá verður hvassast á norðanverðu Snæfellsnesi.
Veðurstofan gaf út gular viðvaranir milli fimm og níu að morgni á Suðurlandi og við Faxaflóa. Veðrið gæti reynst hættulegt farartækjum sem taka á sig mikinn vind. Lausamunir utandyra gætu fokið.
Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld:
Austan og suðaustan 13-18 metrar á sekúndu og rigning, en 18-23 syðst framan af degi. Snýst í suðlæga átt 8-18 með skúrum síðdegis, hvassast á norðanverðu Snæfellsnesi, en léttir til norðaustanlands. Hiti 6 til 15 stig að deginum, hlýjast fyrir norðan.
Sunnan og suðvestan 10-18 og skúrir á morgun, en yfirleitt bjart á norðaustanverðu landinu. Hiti 8 til 14 stig.