Leikkonan Brittany Snow fagnar því að hafa verið í bata frá átröskun í sautján ár.Hún rifjar upp erfiða tíma í færslu á Instagram og segir einlæg að hún hafi verið við dauðans dyr. Hún hvetur aðra til að gefast ekki upp og halda áfram að berjast.Brittany, 40 ára, segir í færslunni að fyrir sautján árum hafi hún „tekið ákvörðun um að hætta að skaða“ sjálfa sig og byrjað batavegferð sína.„Þetta var dagurinn sem ég ákvað að veðja á sjálfa mig, þótt ég gæti ekki ímyndað mér hvernig lífið yrði,“ segir hún.
Brittany Snow: „Ég vissi ekki hvort ég myndi lifa þetta af“