Útlit er fyrir að Sameinað Rússland, flokkur Vladimírs Pútín forseta, fái mikinn meirihluta atkvæða í kosningum til neðri deildar þjóðþingsins Dúmunnar, sem haldnar voru síðustu þrjá daga.
Flokkurinn er með 57,5 prósent atkvæða þegar 71 af hundraði atkvæða hafa verið talin, samkvæmt fréttum rússneskra miðla.
Kommúnistaflokkurinn hefur fengið um fjórtán prósent og hægri sinnaði þjóðernisflokkurinn LDPR 8,7. Kjörsókn virðist hafa verið um 56 prósent þótt stjórnvöld hafi reynt allt til að hvetja landsmenn að kjörborðinu.
Yabloko, eina flokknum sem lýst hefur andstöðu við innrásarstríðið í Úkraínu, var bannað að bjóða sig fram og allt útlit er fyrir að Sameinað Rússland haldi meirihluta í Dúmunni, neðri deild þingsins.
Allir aðrir flokkar styðja stríðsreksturinn og Pútín. Útgönguspáin gerði ekki ráð fyrir atkvæðum greiddum rafrænt og atkvæðum hermanna og því er gert ráð fyrir að Sameinað Rússland fái hærra hlutfall atkvæða að lokum.
Forsetinn fyrrverandi Dmitry Medvedev er formaður Sameinaðs Rússlands og telur flokknum hafa gengið framúrskarandi. „Nú getum við sannarlega komið ákvörðunum forsetans í framkvæmd,“ hefur ríkisfréttamiðillinn RIA eftir Medvedev.
Vladimír Pútín sjálfur hefur hvatt Rússa til að kjósa enda sýndi það stuðning við hersveitir landsins og andstöðu við alla þá sem veikja vilji Rússland. Flestir andstæðingar Pútíns hafa ýmist verið handteknir eða flúið í útlegð.
Helsti mótherjinn Alexei Navalny lést í fangelsi árið 2024 og ekkja hans Yulia Navalnia hvatti alla andstæðinga stríðsins til að greiða atkvæði á hádegi sunnudagsins. Sú herkænskuaðferð varð til þess að fjöldinn allur flykktist á kjörstað í forsetakosningum fyrir tveimur árum.
Úkraínuher gerði umfangsmikla drónaárás á Moskvu aðfaranótt sunnudagsins, sem kostaði tvö mannslíf.
Ein stærsta olíuvinnslustöð Rússlands skemmdist í árásinni sem Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti fagnaði hástöfum. Yfirkjörstjórn sagði fjölda tölvuárása hafa verið gerðar á rafræna kjörkerfið án þess að tilgreina hverjir væru grunaðir um þær. Búist er við fyrstu opinberu tölum í fyrramálið.
Fréttin var uppfærð með nýjum tölum.