Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar er fjallað um verkefni lögreglu frá klukkan fimm í gær til klukkan fimm í nótt.
Tilkynnt var um „aðfinnsluvert háttarlag einstaklings á sólbaðsstofu“ í hverfi 108. Ekki kemur fram hvernig það mál var leyst. Þá var tilkynnt um „afbrigðilega hegðun einstaklinga“ í sama hverfi en það reyndist saklaus skemmtun ungra pilta. Þeir báðust afsökunar og allir héldu sáttir sína leið.
Nokkuð var um hávaðaútköll og barst tilkynning um innbrot í heimahús í Garðabæ.
Ökumaður var sviptur réttindum á staðnum eftir að hann var tekinn á 96 kílómetra hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði var fjörutíu.