Samband ungra sjálfstæðismanna skorar á ríkisstjórnina að blása til þingkosninga og fela nýju fólki það verkefni að endurreisa traust á stjórn efnahagsmála og ná niður vöxtum og verðbólgu.
Þetta kemur fram í stjórnmálaályktun sem samþykkt var á milliþingi SUS á Eskifirði um helgina.
SUS segir að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að leggja áherslu á það í næstu þingkosningum að létta byrðar heimilanna með því að vinda ofan af skattahækkunum sitjandi ríkisstjórnar og taka útlendingamál föstum tökum. Einnig eigi að ráðast að rót vandans á húsnæðismarkaði: gjaldheimtu, regluverki og opinberum hindrunum sem standi í vegi fyrir auknu húsnæðisframboði.