Borgarráð samþykkti í síðustu viku að leysa samninganefnd borgarinnar frá störfum og fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga að sjá um gerð kjarasamninga fyrir hönd borgarinnar.
Samninganefndin var upphaflega sett á fót 1989 og sá um kjarasamninga við fjölda stéttarfélaga síðan. Nefndin hefur verið skipuð af borgarstjóra hverju sinni. Það gerðist fyrst þegar Davíð Oddsson var borgarstjóri. Síðan hafa eftirmenn hans skipað nýjar samninganefndir, þar til nú.
Reykjavíkurborg hyggst spara 65,5 milljónir króna með því að leysa samninganefndina upp.
Í greinargerð Hildar Björnsdóttur borgarstjóra segir að samstarf ríkis og sveitarfélaga í kjaramálum hafi aukist til muna á allra síðustu árum og að hagsmunir borgarinnar liggi í þéttu og öflugu samstarfi á vettvangi kjaramála hins opinbera. Þar kemur einnig fram að Samband íslenskra sveitarfélaga hafi þegar séð um gerð kjarasamninga vegna grunnskólanna og farið með samningsumboð gagnvart stéttarfélögum tónlistarkennara og starfsfólks í tónlistarskólum.
Borgarráðsfulltrúar meirihlutaflokkanna greiddu atkvæði með breytingunni en fulltrúar Samfylkingarinnar á móti. Þeir sögðu spurningar vakna um að kjörnir fulltrúar í borginni vildu fría sig pólitískri ábyrgð á kjarasamningum eigin starfsfólks. Þeir sögðu ákvörðunina lýsa lýðræðishalla og stefnuleysi.
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins sagði að borgin ætti sjálf að sinna sinni kjarasamningsgerð frekar en að færa ákvarðanatöku frá borginni og firra sig pólitískri ábyrgð.