Þrátt fyrir vígreifar yfirlýsingar Friedrich Merz, kanslara Þýskalands, um að sitja sem fastast hefur staða hans sennilega aldrei verið veikari en nú eftir að flokkur hans hlaut sína verstu kosningu í sögunni.
Samkvæmt síðustu tölum komast Kristilegir demókratar ekki inn á þing sambandslandsins Mecklenburg-Vorpommern þar sem þeir ná ekki yfir fimm prósenta þröskuldinn sem tryggir þingsæti.
Þetta er langversta útkoma flokksins í kosningum til þinga sambandslanda frá því Þýskaland var endurreist eftir seinni heimsstyrjöld. Samkvæmt samantekt Deutsche Welle var versta niðurstaða flokksins til þessa þegar hann fékk 9,0 prósent atkvæða í Bremen 1951.
Næstu þrenn kosningaúrslit sem komast á lista yfir verstu niðurstöður Kristilegra demókrata frá upphafi eru allar frá síðustu árum, 11,2 prósent í Hamborg 2020, 12,1 prósent í Brandenburg 2024 og 13,3 prósent í Mecklenburg-Vorpommern fyrir fimm árum.
Kristilegir demókratar voru lengi forystuflokkur í þýskum stjórnmálum ásamt Jafnaðarmönnum. Eftir sextán mánuði við völd á landsvísu bíður flokkurinn hvern ósigurinn á fætur öðrum í sambandslöndunum. Ánægja með störf kanslarans hefur minnkað og spurningar hafa vaknað um hvort eigin flokksmenn myndu skipta honum út fyrir annan til að bregðast við fylgistapi sínu.
Merz sagði í gær að kosningaúrslitin í Mecklenburg-Vorpommern væru stórslys en sagðist ætla að halda áfram sem kanslari.
Forysta Kristilegra demókrata hittist á fundi í dag þar sem ræða á viðbrögð við slæmum úrslitum helgarinnar.
Vinstriflokkurinn Die Linke varð hlutskarpastur í Berlín og hægri jaðarflokkurinn AfD hafði betur en Jafnaðarmenn í Mecklenburg-Vorpommern og varð stærsti flokkurinn þar. Forystumenn AfD fögnuðu og sögðu úrslitin ákall um að þeir kæmust til valda. Aðrir flokkar hafa hafnað samstarfi við þá.