Flokkurinn var áður var með 310 sæti en enginn flokkur hefur áður haft 355 þingsæti í Dúmunni, samkvæmt rússnesku fréttaveitunni RIA. Þessi þingmannafjöldi gerir flokki Pútíns áfram kleift að breyta stjórnarskrá Rússlands án að komu annarra flokka.
Kjörsókn á að hafa verið 59.32 prósent, sem er einnig met.
Þetta eru fyrstu kosningarnar í Rússlandi síðan innrásin var gerð í Úkraínu. Framkvæmd þeirra var stýrt nákvæmlega af yfirvöldum í Rússlandi og hafði andstæðingum ríkisstjórnar Pútíns verið meinað að bjóða sig fram.
Einnig metsigur í Tététínu
Ramzan Kadyrov, leiðtogi Téténíu og náinn bandamaður Vladimírs Pútín, hlaut afgerandi sigur í kosningum helgarinnar. Hann var endurkjörinn leiðtogi ríkisins með nærri því hundrað prósent atkvæða, samkvæmt yfirkjörstjórn Rússlands.
Einræðisherrann hefur stjórnað Téténíu frá árinu 2004 þegar faðir hans, Akhmat, var myrtur í sprengjuárás.
Kadyrov fékk, samkvæmt frétt RIA, 99,85 prósent greiddra atkvæða í kosningum helgarinnar og mun því sitja fimmta kjörtímabilið. Árið 2021 fékk hann 99,73 prósent atkvæða og 94,8 prósent árið 2016. Það ár voru fyrstu kosningarnar haldnar í Téténíu en Kadyrov hefur haldið því fram að það hafi verið hann sjálfur sem hafi átt hugmyndina að því að leiðtogi Téténíu ætti að vera kosinn af íbúum landsins.
Í frétt Retuers er tekið fram að alþjóðlegir eftirlitsaðilar hafi um árabil gagnrýnt framkvæmd kosninga í Téténíu harðlega. Kadyrov, sem hefur einnig verið gagnrýndur fyrir mikið harðræði, hefur þó ávallt hafnað slíkri gagnrýni.