Patrick Clancy, fyrrverandi eiginmaður Lindsay Clancy, segist hafa fyrirgefið henni að hafa orðið þremur ungum börnum þeirra að bana. Hann lýsir jafnframt þeim skelfilega degi þegar hann fann börnin og segir yngsta son þeirra hafa látist í örmum sínum fjórum dögum síðar.Patrick ræddi málið í fyrsta sjónvarpsviðtali sínu frá því að réttarhöldunum yfir Lindsay lauk án niðurstöðu fyrr í þessum mánuði. Viðtalið var sýnt í 60 Minutes á CBS í gær. AP fjallar um efni viðtalsins.
Rýfur þögnina í 60 Minutes: Fyrirgaf eiginkonu sinni eftir ólýsanlegan harmleik á heimili þeirra