Yfirmenn evrópskra leyniþjónustustofnana vara við því að Rússar kunni á næstu mánuðum að láta reyna á viðbrögð NATO. Þar gæti verið um að ræða dróna- eða eldflaugaárásir, skemmdarverk, ögranir eða jafnvel takmarkaða innrás á landsvæði bandalagsins.Michal Koudelka, yfirmaður tékknesku öryggisþjónustunnar BIS, segir mögulegt að Rússar kunni brátt að ganga lengra en hingað til í svokölluðu skuggastríði sínu gegn Evrópu.Í samtali við The Guardian sagði Koudelka að næsta skref gæti meðal annars falist í takmarkaðri innrás á landsvæði NATO-ríkis sem á landamæri að Rússlandi.
Óttast næstu skref Rússa: Gætu látið reyna á NATO innan fárra mánaða