Vilja þing­kosningar og staðgöngumæður - Vísir

Milliþing SUS fór fram á Eskifirði um helgina, í heimabæ Jens Garðars Helgasonar, varaformanns flokksins. Yfir fimmtíu meðlimir lögðu leið sína austur á land og samþykktu stjórnmálaályktun einróma. 

Haldinn var hátíðarkvöldverður í Randulfssjóhúsi á laugardagskvöldið. Meðal gesta voru Jens Garðar varaformaður, Ólafur Adolfsson þingflokksformaður, Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður flokksins, og Arnbjörg Sveinsdóttir, fyrrverandi þingflokksformaður.

Í henni segir meðal annars að ríkisstjórnin hafi ekki vilja til að takast af ábyrgð við stöðuna í efnahagsmálum. Allar aðgerðir hingað til hafi aukið verðbólgu og kallað fram vaxtahækkanir. 

„Ríkisstjórnarflokkarnir guldu afhroð í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Í kjölfarið klauf ríkisstjórnin þjóðina í herðar niður í ESB-málinu og nú boðar hún umfangsmestu skattahækkanir á Íslandi síðan Jóhönnustjórnin var og hét,“ segir í ályktuninni. 

„Margumtöluð sleggja forsætisráðherra hefur afhjúpað hversu innihaldslaus verkfærakista ríkisstjórnarinnar er. Sleggjunni hefur verið beitt á ungt fólk, heimilin og atvinnulífið, en hvorki á vexti né verðbólgu. Erindi ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur er að þrotum komið.“

Því er skorað á ríkisstjórnina að blása til þingkosninga og gefa landsmönnum kost á að fela nýju fólki það verkefni að endurreisa traust á stjórn efnahagsmála. 

Lækka skatta

Í efnahagsmálum vill sambandið að ríkið dragi úr útgjöldum og hætti að ýta undir verðbólgu með aukinni skattheimtu og gjaldahækkunum. Lækka þurfi fjármagnstekjuskatt í tíu prósent og hafa eitt tekjuskattsþrep sem nemur þrjátíu prósentum. 

Leggja ætti niður Ríkisútvarpið þar sem ríkið eigi ekki að standa í fjölmiðlarekstri eða keppa við frjálsa fjölmiðla. Sömuleiðis ætti að leggja niður Fjölmiðlanefnd.

Skorað er á Alþingi að leyfa staðgöngumæðrun og draga úr umsvifum Samkeppniseftirlitsins og Persónuverndar. Sambandið fagnar því að nú megi samkynhneigðir karlar gefa blóð en leggst gegn því að hvalveiðir verði bannaðar.

Samfélagsfræðipróf fyrir innflytjendur 

Í útlendingamálum vill sambandið að setja eigi afgreiðslu nýrra umsókna um alþjóðlega vernd í tímabundna bið á meðan farið er yfir forsendur og framkvæmd kerfisins. Bæta þurfi aðlögun þeirra sem þegar hafa fengið vernd og taka upp samfélagsfræðipróf fyrir þá sem sækja um íslenskan ríkisborgarétt. 

„Þeir sem flytja hingað til lands eiga að aðlagast íslensku samfélagi, en ekki öfugt. Herða þyrfti skilyrði til þess að öðlast íslenskan ríkisborgararétt, til að mynda með auknum kröfum til íslenskukunnáttu,“ segir í ályktuninni. 

Eingöngu ríkisborgarar megi kjósa

Koma þurfi í veg fyrir að erlendir ríkisborgarar geti öðlast réttindi í bótakerfum Íslands án nægilegra tengsla við landið. Þá eigi kosningaréttur á Íslandi að fylgja ríkisborgararétti. 

„Breyta skal kosningalögum þannig að eingöngu íslenskir ríkisborgarar hafi kosningarrétt í sveitarstjórnarkosningum, líkt og þegar gildir um alþingiskosningar, forsetakjör og þjóðaratkvæðagreiðslur,“ segir í ályktuninni. 

Ályktunina má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

Stjórnmálaályktun milliþings Sambands ungra sjálfstæðismanna á Eskifirði

September 2026

Í þjóðaratkvæðagreiðslunni um ESB hafnaði meirihluti Íslendinga óvissuferð ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur til Brussel. Að þeirri niðurstöðu fenginni blasir við það verkefni að takast af ábyrgð við stöðuna í efnahagsmálum. Ríkisstjórnin virðist hins vegar ekki hafa vilja til þess og hafa allar aðgerðir hennar hingað til aðeins aukið verðbólgu og þar með kallað fram vaxtahækkanir.

Ríkisstjórnarflokkarnir guldu afhroð í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Í kjölfarið klauf ríkisstjórnin þjóðina í herðar niður í ESB-málinu og nú boðar hún umfangsmestu skattahækkanir á Íslandi síðan Jóhönnustjórnin var og hét.

Margumtöluð sleggja forsætisráðherra hefur afhjúpað hversu innihaldslaus verkfærakista ríkisstjórnarinnar er. Sleggjunni hefur verið beitt á ungt fólk, heimilin og atvinnulífið, en hvorki á vexti né verðbólgu. Erindi ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur er að þrotum komið.

SUS skorar því á ríkisstjórnina að blása til þingkosninga og gefa landsmönnum kost á að fela nýju fólki það verkefni að endurreisa traust á stjórn efnahagsmála og ná niður vöxtum og verðbólgu.

SUS telur einsýnt að í næstu þingkosningum eigi Sjálfstæðisflokkurinn að leggja höfuðáherslu á að létta byrðar heimilanna með því að vinda ofan af skattahækkunum sitjandi ríkisstjórnar, taka útlendingamálin föstum tökum og ráðast að rót vandans á húsnæðismarkaði: gjaldheimtu, regluverki og opinberum hindrunum sem standa í vegi fyrir auknu framboði húsnæðis.

Samband ungra sjálfstæðismanna vill frjálst samfélag þar sem einstaklingurinn ræður för, ekki ríkisvaldið. Við trúum því að framtíð Íslands byggist á frelsi, ábyrgð og frumkvæði einstaklingsins, ekki miðstýringu og sívaxandi ríkisumsvifum.

„Fullveldinu megum við aldrei afsala okkur. Við eigum að skila landinu betra en við tókum við því.“

- Bjarni Benediktsson eldri.

Efnahagsmál

●Forsenda lægri vaxta og stöðugs verðlags er ábyrg stjórn ríkisfjármála. Ríkið þarf að draga úr útgjöldum, stöðva hallarekstur og hætta að ýta undir verðbólgu með aukinni skattheimtu, gjaldahækkunum og sívaxandi ríkisumsvifum.

●Ná þarf fram hallalausum fjárlögum án skattahækkana. Mikilvægt er að lækka skuldir ríkissjóðs og hefja stórfellda sölu ríkiseigna. Ríkið á ekki að standa í atvinnurekstri eða samkeppni við einkaaðila þegar markaðurinn getur sinnt verkefnunum.

●Opinberi vinnumarkaðurinn má ekki leiða launaþróun eða njóta óeðlilegrar sérstöðu gagnvart almennum vinnumarkaði. Afnema þarf umframvernd opinberra starfsmanna.

●Skattar eiga að vera lægri, einfaldari og fyrirsjáanlegri. Vinda þarf ofan af skattahækkunum ríkisstjórnarinnar, lækka þarf fjármagnstekjuskatt niður í 10% og fækka þarf tekjuskattsþrepum í eitt skattþrep sem yrði 30%. Afnema skal tryggingagjald, vörugjöld á bifreiðar og eignaskatta á borð við fasteigna- og erfðafjárskatt.

●SUS telur að breyta eigi innheimtu skatta þannig að skattgreiðendur fái sundurliðaða innheimtukröfu. Þannig verði skattbyrðin sýnilegri og vitund almennings um umfang skattheimtu aukin.

●Sérstakir skattar á einstakar atvinnugreinar eiga ekki rétt á sér. Slík skattheimta dregur úr fjárfestingu, veikir samkeppnishæfni Íslands og hamlar verðmætasköpun, ekki síst í greinum sem keppa á alþjóðlegum mörkuðum.

●Draga þarf verulega úr regluverki og ríkisafskiptum í atvinnulífinu, einfalda stjórnsýslu, fækka stofnunum og láta af blýhúðun EES-reglna þar sem Ísland hefur svigrúm til þess.

●Einkaframtak, samkeppni og frelsi einstaklinga eiga að vera leiðarljós atvinnustefnunnar. Ríkið á hvorki að velja sigurvegara í nýsköpun né halda úti starfsemi sem einkaaðilar geta sinnt betur.

●Auka þurfi hvata til barneigna með fjárhagslegum stuðningi, meðal annars með skattaívilnunum og stuðningur sé tryggður við barnafjölskyldur með einföldum, gagnsæjum og skilvirkum hætti.

●Markmið efnahagsstefnunnar á að vera einfalt: minna ríki, lægri skattar, stöðugri ríkisfjármál og meira svigrúm fyrir einstaklinga og fyrirtæki til að skapa verðmæti.

Húsnæðis- og skipulagsmál

●Húsnæðisverð er hátt og núverandi reglur um lánveitingar, uppbyggingu og lóðaframboð gera fólki erfiðara fyrir að eignast eigið heimili. Skynsamleg leið út úr vandanum felst í því að endurskoða skipulagslög á Alþingi og færa hluta af valdsviði þeirra til sveitarfélaganna, fella niður svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins sem skerðir ákvörðunarvald sveitarfélaga og að treysta einkaaðilum til að byggja í samræmi við þarfir og eftirspurn markaðarins.

●Einfalda þarf byggingarreglugerð til muna til að auðvelda uppbyggingu húsnæðis, bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga.

●Brjóta þarf nýtt land í takt við eftirspurn og auka byggingarfrelsi til að tryggja lægra verð.

●Sveitarfélög sem innheimta innviða- og byggingarréttargjöld eiga að fylgja fordæmi Reykjanesbæjar og fella niður innviða- og byggingarréttargjöld.

●Stimpilgjöld á íbúðakaup eiga að vera afnumin.

●Endurvekja skal 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts af keyptri vinnu við byggingu og viðhald íbúðarhúsnæðis.

●Fækka þarf fasteignum í eigu hins opinbera.

●Afnema ætti hömlur á skammtímaleigu.

●SUS leggst alfarið gegn öllum hugmyndum um leiguþök eða bremsur, og banni á vísitölutengingu leigusamninga. Slíkar aðgerðir draga aðeins úr framboði á fasteigna- og leigumarkaði.

Frelsismál

●Lögleiða ætti hnefaleika í atvinnuskyni á Íslandi.

●Leggja ætti niður Ríkisútvarpið enda á ríkið ekki að standa í fjölmiðlarekstri eða keppa við frjálsa fjölmiðla. Samhliða ætti að hætta ríkisstyrkjum til einkarekinna fjölmiðla og leggja niður Fjölmiðlanefnd.

●SUS skorar á Alþingi að leyfa staðgöngumæðrun á Íslandi.

●Ríkið á ekki að standa í smásölu áfengis. Einkaaðilar eiga alfarið að sjá um sölu þess í frjálsri samkeppni.

●Afnema ætti hömlur á sölu lausasölulyfja.

●Endurskoða þarf hatursorðræðulöggjöf þannig að skýrt sé að skoðanir, hversu óvinsælar eða ögrandi sem þær kunna að vera, séu ekki refsiverðar. Hvatning til ofbeldis er þar undanskilin.

●Stjórnvöld eiga að virða friðhelgi einkalífs og stafræn samskipti eiga að njóta sömu verndar og önnur einkasamskipti. SUS telur vert að gjalda varhug við þeirri þróun sem við sjáum í Evrópu þar sem reynt er að auka almennt eftirlit með stafrænum samskiptum borgaranna. SUS leggst sérstaklega gegn svonefndum „Chat Control“-hugmyndum innan Evrópusambandsins. Baráttan gegn glæpum réttlætir ekki að friðhelgi alls almennings sé fórnað eða komið verði á víðtæku eftirliti með einkasamskiptum fólks.

●Draga ætti úr umsvifum Samkeppniseftirlitsins og Persónuverndar.

●SUS fagnar því að baráttumál sambandsins um að samkynhneigðir karlar fái að gefa blóð hafi náð fram að ganga.

●SUS leggst alfarið gegn áformum stjórnvalda um að banna sjálfbærar hvalveiðar á Íslandi.Virða þarf atvinnufrelsi hér á landi, sem tryggt er í stjórnarskrá.

●Gera ætti veðmálastarfsemi löglega á Íslandi með upptöku starfsleyfa í stað sérleyfa. Tugi milljarða króna streyma úr landi á ári hverju þar sem veðmálasíðum er óheimilt að vera með starfsleyfi á Íslandi.

●Endurskoða þarf nýju sóttvarnarlögin og ganga í skugga um að ráðherra hafi ekki of víðtækar heimildir til reglusetningar án frekari aðkomu þingsins, svosem um útgöngubann og bólusetningar.

Útlendingamál

●SUS fagnar þeim einstaklingum sem hingað koma til að verða virkir þátttakendur í samfélaginu, tileinka sér tungumálið og vinna hörðum höndum.

●SUS telur að afgreiðslu nýrra umsókna um alþjóðlega vernd eigi að setja í tímabundna bið á meðan farið er yfir forsendur og framkvæmd kerfisins.

●Bæta þarf aðlögun þeirra sem þegar hafa fengið vernd. Íslendingar ættu að taka upp samfélagsfræðipróf fyrir þá sem sækja um íslenskan ríkisborgararétt eins og gert er í Þýskalandi.

●Þeir sem flytja hingað til lands eiga að aðlagast íslensku samfélagi, en ekki öfugt. Herða þyrfti skilyrði til þess að öðlast íslenskan ríkisborgararétt, til að mynda með auknum kröfum til íslenskukunnáttu.

●Gera þarf heildarúrbætur á bótakerfum Íslands til að koma í veg fyrir að erlendir ríkisborgarar geti öðlast réttindi í þeim án nægilegra tengsla við landið. Velferðarkerfið er sameiginlegt öryggisnet íslensks samfélags og á fyrst og fremst að standa vörð um þá sem hér hafa byggt upp varanleg tengsl, tekið þátt í samfélaginu og lagt sitt af mörkum.

●Leggja þarf niður það fyrirkomulag að Alþingi veiti ríkisborgararétt með lögum árlega. Núverandi kerfi, þar sem sumir þurfa að fara stjórnsýsluleiðina en aðrir ekki, gerir það að verkum að þeir sem sækjast eftir ríkisborgararétti sitja ekki við sama borð.

●Samband ungra sjálfstæðismanna telur að kosningarréttur á Íslandi eigi að fylgja íslenskum ríkisborgararétti. Breyta skal kosningalögum þannig að eingöngu íslenskir ríkisborgarar hafi kosningarrétt í sveitarstjórnarkosningum, líkt og þegar gildir um alþingiskosningar, forsetakjör og þjóðaratkvæðagreiðslur.

#staðgöngumæður #vilja #vísir #þingkosningar

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262937569d/vilja-thingkosningar-og-stadgongumaedur

📰 Aðrar fréttir

Ratcliffe keppir við CarbFix
📅 21.09.2026 👁️ 0
Ratcliffe keppir við CarbFix
Ratcliffe keppir við CarbFix Fréttin21. september 2026Erlent, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Föstudaginn 18. september...
Trén á höfuðborgarsvæðinu veittu gott skjól í morgun
📅 21.09.2026 👁️ 0
Trén á höfuðborgarsvæðinu veittu gott skjól í morgun
Gular viðvaranir voru í gildi fram eftir morgni en töluvert meiri vindur mældist utan byggðar en innan á suðvesturhorninu. Einar Sveinbjörnsson veðurf...
Birti hjartnæma færslu tveimur mánuðum fyrir andlát hans
📅 21.09.2026 👁️ 0
Birti hjartnæma færslu tveimur mánuðum fyrir andlát hans
Ofurfyrirsætan Cindy Crawford birti einlæga afmæliskveðju til sonar síns, Presley Gerber, tveimur mánuðum fyrir andlát hans.Presley lést aðeins 27 ára...
Óttast næstu skref Rússa: Gætu látið reyna á NATO innan fárra mánaða
📅 21.09.2026 👁️ 1

Yfirmenn evrópskra leyniþjónustustofnana vara við því að Rússar kunni á næstu mánuðum að láta reyna á viðbrögð NATO. Þar gæti verið um að ræða dróna- ...
Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kíló­metra hraða - Vísir
📅 21.09.2026 👁️ 0
Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kíló­metra hraða - Vísir
Lögreglu barst tilkynning um glæfralegan akstur bifhjóls í Mosfellsbæ í gær. Ungur ökumaður ók þar um á rafmagnskrossara án skráningarnúmers. Lögregla...
Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni - Vísir
📅 21.09.2026 👁️ 0
Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni - Vísir
Um 250 tískuunnendur komu þar saman að virða fyrir sér helstu stefnur og strauma haustsins úr verslunum Kringlunnar.  Tinna Aðalbjörnsdóttir og Anna C...
ESB stendur frammi fyrir „verstu orkukreppu sögunnar“
📅 21.09.2026 👁️ 0
ESB stendur frammi fyrir „verstu orkukreppu sögunnar“
ESB stendur frammi fyrir „verstu orkukreppu sögunnar“ Fréttin21. september 2026Erlent, MarkaðurLeave a Comment Kirill Dmitriev. Evrópa stendur frammi ...
Börn á raf­magn­s­krossurum og Kópa­vogur vill herða reglur - Vísir
📅 21.09.2026 👁️ 0
Börn á raf­magn­s­krossurum og Kópa­vogur vill herða reglur - Vísir
Rætt verður við varðstjóra umferðardeildar um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar sem segir að um foreldravandamál sé að ræða. Þreifingar áttu sér stað ...
Grænlenskt Trump-já og íslenskt ESB-nei
📅 21.09.2026 👁️ 0
Grænlenskt Trump-já og íslenskt ESB-nei
Grænlenskt Trump-já og íslenskt ESB-nei Fréttin21. september 2026Erlent, Evrópusambandið, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Mette Frederiksen,...
Sig­mar í veikinda­leyfi - Vísir
📅 21.09.2026 👁️ 0
Sig­mar í veikinda­leyfi - Vísir
María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu og segir óljóst hvenær Sigmar snýr aftur til þingstarfa. Ma...
Tafir á Kefla­víkur­flug­velli - Vísir
📅 21.09.2026 👁️ 0
Tafir á Kefla­víkur­flug­velli - Vísir
Á vef flugvallarins má sjá að flestar vélar sem áttu að fara frá Keflavík í morgun hafa tafist, en meðal annars varð rúmlega klukkutíma töf á brottför...
Höfða mál gegn Trump vegna bannsins - Vísir
📅 21.09.2026 👁️ 0
Höfða mál gegn Trump vegna bannsins - Vísir
Í yfirlýsingu frá fjölmiðlunum segir að bannið sé klárt brot á fyrsta viðauka stjórnarskrár Bandaríkjanna og að það brjóti einnig gegn þeim grunngildu...
Stefna Hvíta húsinu vegna fjölmiðlabanns
📅 21.09.2026 👁️ 0
Stefna Hvíta húsinu vegna fjölmiðlabanns
Forsvarsmenn bandarísku fjölmiðlafyrirtækjanna CNN, MS NOW og Politico greindu frá því í dag að þeir ætluðu í mál við bandarísk stjórnvöld. Þetta gera...
Frítt í strætó á morgun
📅 21.09.2026 👁️ 2
Frítt í strætó á morgun
Vegfarendur geta ferðast frítt með Strætó á bíllausa deginum á morgun.Bíllausi dagurinn er hluti af Evrópsku samgönguvikunni sem hófst í síðustu viku ...
BBC removes 11 Mitchell and Webb comedy sketches from iPlayer
📅 21.09.2026 👁️ 0
BBC removes 11 Mitchell and Webb comedy sketches from iPlayer
The corporation said it had included "the ones that still work today and not the ones that don't."
Helen Jenner announced as new leader of Reform in Wales
📅 21.09.2026 👁️ 1
Helen Jenner announced as new leader of Reform in Wales
Jenner, who represents Bangor Conwy Mon in the Senedd, was previously Reform's Welsh deputy leader.
Southport killer accused of throwing boiling water mixed with sugar at prison officer
📅 21.09.2026 👁️ 0
Southport killer accused of throwing boiling water mixed with sugar at prison officer
Axel Rudakubana is accused of grievous bodily harm and two other assaults of prison officers while serving a life sentence.
Landsréttur svipti konu skaðabótum vegna þess að hún var ölvuð þegar hún datt á framkvæmdasvæði
📅 21.09.2026 👁️ 2
Landsréttur svipti konu skaðabótum vegna þess að hún var ölvuð þegar hún datt á framkvæmdasvæði
Landsréttur sneri við fyrir helgi dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði dæmt VÍS skaðabótaskylt vegna líkamstjóns sem kona varð fyrir í slysi í janúar...
Notuðu Borgarbókasafnið til að reyna að svindla á rithöfundi
📅 21.09.2026 👁️ 2
Notuðu Borgarbókasafnið til að reyna að svindla á rithöfundi
Óprúttnir aðilar reyndu að nýta sér Borgarbókasafn Reykjavíkur til að svíkja fé út úr Unu Margréti Jónsdóttur dagskrárgerðarkonu á Rás 1, fræðikonu og...
Ein­stakt ein­býli Sigurðar og Láru - Vísir
📅 21.09.2026 👁️ 2
Ein­stakt ein­býli Sigurðar og Láru - Vísir
Þau hafa komið sér einstaklega vel fyrir í einbýlishúsi í Selásnum í Árbænum þar sem þau hafa búið í nokkra áratugi. Í húsinu eru fjölmörg falleg list...
Flokkur Pútíns aldrei fengið fleiri sæti í Dúmunni
📅 21.09.2026 👁️ 1
Flokkur Pútíns aldrei fengið fleiri sæti í Dúmunni
Sameinað Rússland, flokkur Vladimírs Pútíns forseta, hlaut yfirburðakosningu í þingkosningunum sem lauk þar í landi um helgina. Samkvæmt bráðabirgðani...
Landlæknir svipti sex lækna starfsleyfi eftir afhjúpun
📅 21.09.2026 👁️ 1
Landlæknir svipti sex lækna starfsleyfi eftir afhjúpun
Landlæknir svipti sex lækna starfsleyfi eftir afhjúpun María Heimisdóttir Mynd: Embætti Landlæknis/Olga Björt Þórðardóttir Embætti landlæknis hefur fe...
Andlát Díönu „endurómar“ í reynslu Harry og Markle
📅 21.09.2026 👁️ 2
Andlát Díönu „endurómar“ í reynslu Harry og Markle
Bróðir Díönu prinsessu, Charles Spencer, segist sjá „enduróm“ af því sem kom fyrir systur hans í meðferð almenning á Harry prins og Meghan Markle.„Ef ...
Ungir Sjálfstæðismenn vilja nýjar þingkosningar
📅 21.09.2026 👁️ 2
Ungir Sjálfstæðismenn vilja nýjar þingkosningar
Samband ungra sjálfstæðismanna skorar á ríkisstjórnina að blása til þingkosninga og fela nýju fólki það verkefni að endurreisa traust á stjórn efnahag...
Rýfur þögnina í 60 Minutes: Fyrirgaf eiginkonu sinni eftir ólýsanlegan harmleik á heimili þeirra
📅 21.09.2026 👁️ 2
Rýfur þögnina í 60 Minutes: Fyrirgaf eiginkonu sinni eftir ólýsanlegan harmleik á heimili þeirra
Patrick Clancy, fyrrverandi eiginmaður Lindsay Clancy, segist hafa fyrirgefið henni að hafa orðið þremur ungum börnum þeirra að bana. Hann lýsir jafnf...
Inside a camp for Yemeni refugees who have fled to Djibouti
📅 21.09.2026 👁️ 1
Inside a camp for Yemeni refugees who have fled to Djibouti
Fighting on Yemen's west coast has prompted thousands of people to flee by boat across the Bab al-Mandab Strait.
Inside Djibouti refugee camp for thousands fleeing Houthi advance in Yemen

Stjörnum prýdd fyrsta frum­sýning vetrarins - Vísir
📅 21.09.2026 👁️ 2
Stjörnum prýdd fyrsta frum­sýning vetrarins - Vísir
„Verkið er í senn bráðfyndið og alvarlegt verk um tilbreytingarleysi hversdagsleikans, einmanaleikann og löngun til að mynda tengsl. Björn Thors leiks...
Pútín sló öll met - Vísir
📅 21.09.2026 👁️ 2
Pútín sló öll met - Vísir
Flokkurinn var áður var með 310 sæti en enginn flokkur hefur áður haft 355 þingsæti í Dúmunni, samkvæmt rússnesku fréttaveitunni RIA. Þessi þingmannaf...
Íslensk söngstjarna selur Konu
📅 21.09.2026 👁️ 0
Íslensk söngstjarna selur Konu
Íslensk söngstjarna selur Konu Regína Ósk og Friðrik ÓmarLentu í 14. sæti. Mynd: ANDREJ ISAKOVIC / AFP Söngkonan Regína Ósk Óskarsdóttir hefur sett bí...
Leggja niður samninganefnd sem var komið á fót í borgarstjóratíð Davíðs
📅 21.09.2026 👁️ 2
Leggja niður samninganefnd sem var komið á fót í borgarstjóratíð Davíðs
Borgarráð samþykkti í síðustu viku að leysa samninganefnd borgarinnar frá störfum og fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga að sjá um gerð kjarasamning...
Eitt óvenjulegasta hús Íslands sett á sölu
📅 21.09.2026 👁️ 2
Eitt óvenjulegasta hús Íslands sett á sölu
Eitt óvenjulegasta hús Íslands sett á sölu Svarfaðarbraut 22 Einbýlishús við Svarfaðarbraut 22 á Dalvík hefur verið sett á sölu. Um er að ræða 192,9 f...
Sigur­boginn verður leyniskyttuhreiður - Vísir
📅 21.09.2026 👁️ 2
Sigur­boginn verður leyniskyttuhreiður - Vísir
Forsetinn hefur til að mynda kallað veislusalinn sem hann er að reisa við Hvíta húsið hernaðarmannvirki og haldið því fram að salurinn sé nauðsynlegur...
Missti rúmlega 6 kíló með því að gera eina breytingu á mataræðinu
📅 21.09.2026 👁️ 4

Breska sjónvarpsstjarnan, rithöfundurinn og tískuráðgjafinn Susannah Constantine missti rúmlega sex kíló með því að gera eina breytingu á mataræðinu í...
„Æj, sorry elskan, ég er ekki í stuði í kvöld því ég fróaði mér svo mikið í dag“
📅 21.09.2026 👁️ 2
„Æj, sorry elskan, ég er ekki í stuði í kvöld því ég fróaði mér svo mikið í dag“
Eva Pandora Baldursdóttir, sambands- og kynlífsráðgjafi, ræðir um kynlífstæki, sjálfsfróun og sambönd í pistli á Vísi.„Nokkuð hefur borið á umræðu í s...
Stórleikarinn frumsýnir nýtt útlit með mikið yngri eiginkonu
📅 21.09.2026 👁️ 2
Stórleikarinn frumsýnir nýtt útlit með mikið yngri eiginkonu
Stórleikarinn Nicolas Cage mætti á viðburð í Lucas Museum of Narrative Art. Hann mætti ásamt eiginkonu sinni, Riko Shibata, sem er helmingi yngri en h...
D-Day veteran Kenneth Hay dies aged 101
📅 21.09.2026 👁️ 2
D-Day veteran Kenneth Hay dies aged 101
Kenneth Hay was an "extraordinary gentleman whose remarkable life will never be forgotten", the British Normandy Memorial says.
Samninga­nefnd Reykja­víkur­borgar leyst undan störfum - Vísir
📅 21.09.2026 👁️ 2
Samninga­nefnd Reykja­víkur­borgar leyst undan störfum - Vísir
Á fundi borgarráðs á fimmtudag lagði Hildur til að SÍS fengi umboð til kjarasamningsgerðar fyrir hönd borgarinnar við stéttarfélög. Síðan 1989 hefur s...
Ekkert eftir nema yfirbragð lýðræðis
📅 21.09.2026 👁️ 2
Ekkert eftir nema yfirbragð lýðræðis
Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, segir að kosningar til rússneska þingsins í gær séu enn eitt áfallið fyrir lýðræði í Rússlandi. „R...
Maður á ní­ræðis­aldri lést í á­tökum um sólbekk - Vísir
📅 21.09.2026 👁️ 2
Maður á ní­ræðis­aldri lést í á­tökum um sólbekk - Vísir
Atvikið átti sér stað á Vouliagmeni-strönd við Aþenu-borg í Grikklandi í gær. Lögreglan á svæðinu rannsakar nú málið. Átök á milli tveggja eldri borga...
Noregur og Kanada auka sam­starf í varnar­málum - Vísir
📅 21.09.2026 👁️ 2
Noregur og Kanada auka sam­starf í varnar­málum - Vísir
Jonas Gahr Støre, norski forsætisráðherrann, hitti Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, í Ottawa í gær. Að fundinum loknum sagði Støre meðal annars a...
ESB hafnar „svokölluðum“ kosningum í Rússlandi
📅 21.09.2026 👁️ 3

ESB hafnar „svokölluðum“ kosningum í Rússlandi Kaja Kallas, æðsti full­trúi ESB í ut­an­rík­is- og ör­ygg­is­mál­um, seg­ir þing­kosn­ing­arn­ar í Rús...
Merz berst fyrir pólitísku lífi sínu eftir verstu útreið Kristilegra demókrata
📅 21.09.2026 👁️ 2
Merz berst fyrir pólitísku lífi sínu eftir verstu útreið Kristilegra demókrata
Þrátt fyrir vígreifar yfirlýsingar Friedrich Merz, kanslara Þýskalands, um að sitja sem fastast hefur staða hans sennilega aldrei verið veikari en nú ...
Gjörbreyttur fyrir nýjasta stórhlutverk sitt
📅 21.09.2026 👁️ 3
Gjörbreyttur fyrir nýjasta stórhlutverk sitt
Kvikmyndin November 1963 verður frumsýnd í kvikmyndahúsum 20. nóvember. Myndin, sem fjallar um 48 klukkustunda tímabilið í kringum morðið á John F. Ke...
„Fimmtán karlmenn voru tilbúnir að stunda kynlíf með mér þegar það var augljóst að ég var ekki að njóta þess“
📅 21.09.2026 👁️ 3
„Fimmtán karlmenn voru tilbúnir að stunda kynlíf með mér þegar það var augljóst að ég var ekki að njóta þess“
„Eiginmaðurinn minn pakkaði myndavél fyrir brúðkaupsferðina okkar og sagðist ætla að taka fallegar náttúrumyndir en fyrstu nóttina okkar saman stillti...
27 ára sonur Cindy Crawford er látinn
📅 21.09.2026 👁️ 4
27 ára sonur Cindy Crawford er látinn
Presley Gerber, sonur ofurfyrirsætunnar Cindy Crawford og athafnamannsins Rande Gerber, er látinn, aðeins 27 ára að aldri.Presley, sem sjálfur starfað...
Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár - Vísir
📅 21.09.2026 👁️ 3
Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár - Vísir
Regndropar á bílrúðu, fuglasöngur, marrið í snjónum, rúðuþurrkur og jafnvel smellirnir í lyklaborði eru meðal þeirra hljóða sem höfðu verið horfin í m...
Í hvað fara skattpeningarnir þínir árið 2027?
📅 21.09.2026 👁️ 3
Í hvað fara skattpeningarnir þínir árið 2027?
Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 var lagt fram á dögunum. Útgjöld ríkissjóðs verða 1.704 milljarðar króna á næsta ári og aukast um 83 milljarða milli ...
Jóhannes á villigötum
📅 21.09.2026 👁️ 3
Jóhannes á villigötum
Jóhannes á villigötum Jóhannes Haukur Jóhannesson Mynd: FRAZER HARRISON / GETTY IMAGES NORTH AMERICA / GETTY IMAGES VIA AFP Það er ekki á hverjum degi...
Fyrir­gefur Lindsay fyrir að myrða börnin - Vísir
📅 21.09.2026 👁️ 3
Fyrir­gefur Lindsay fyrir að myrða börnin - Vísir
Þá segist Patrick, í nýju viðtali við 60 mínútur, hafa fengið kvíðakast þegar hann bar vitni í réttarhöldunum gegn Clancy, þegar símtal hans til banda...