María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu og segir óljóst hvenær Sigmar snýr aftur til þingstarfa. María Rut er varaformaður þingflokksins og verður í fjarveru hans starfandi þingflokksformaður Viðreisnar.
Í tilkynningu sem birtist á vef Alþingis í morgun segir að varaþingmaðurinn Valdimar Breiðfjörð Birgisson taki í dag sæti fyrir Sigmar. Valdimar er sjöundi þingmaður Suðvesturkjördæmis og hefur áður tekið sæti á þingi fyrir flokkinn.