Óprúttnir aðilar reyndu að nýta sér Borgarbókasafn Reykjavíkur til að svíkja fé út úr Unu Margréti Jónsdóttur dagskrárgerðarkonu á Rás 1, fræðikonu og rithöfundi. Segir Una Margrét að um nokkuð sannfærandi aðila hafi verið að ræða í fyrstu en síðan hafi farið að renna á hana tvær grímur. Una Margrét greinir frá málinu í Facebook-færslu.
Notuðu Borgarbókasafnið til að reyna að svindla á rithöfundi