Sameinað Rússland, flokkur Vladimírs Pútíns forseta, hlaut yfirburðakosningu í þingkosningunum sem lauk þar í landi um helgina. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum sem Ella Pamfilova, yfirmaður rússnesku kjörstjórnarinnar, kynnti í morgun fær flokkurinn 355 af 450 sætum í Dúmunni, neðri deild þingsins, sem er besti árangur flokksins frá upphafi. Fyrra met var árið 2016 þegar flokkurinn fékk 343 sæti.
Með þessu er Sameinað Rússland komið með nægan meirihluta á þinginu til að breyta stjórnarskrá án aðkomu annarra flokka.
Sameinað Rússland hefur haft yfirburði í rússneskum stjórnvöldum alla öldina, en Pútín komst til valda á gamlárskvöld 1999.
Þetta voru fyrstu þingkosningarnar í Rússlandi frá allsherjarinnrásinni í Úkraínu í febrúar 2022 og óhætt að segja að úrslitin hafi verið viðbúin. Yabloko, eina flokknum sem hefur sett fram gagnrýni á stríðsreksturinn, var meinað að bjóða fram í kosningunum og forvígismenn flokksins hafa verið handteknir.
Yabloko náði þó fótfestu í kosningum í Novgorod þar sem flokkurinn komst yfir fimm prósenta þröskuldinn til að ná þingmönnum inn á héðraðsþingið.
Pamfilova sagði að kjörsókn hefði verið yfir 59 prósentum og þakkaði Rússum fyrir að mæta á kjörstað þrátt fyrir það sem hún kallaði „sálrænan þrýsting“ á landið.
Dmitry Peskov, talsmaður stjórnvalda í Kreml, sagði sigurinn vera til vitnis um að Rússar stæðu að baki forsetans.
„Þetta bendir til þess að samfélagið hafi sameinast að baki þjóðhöfðingjanum sem aldrei fyrr,“ sagði Peskov á blaðamannafundi í morgun.
Þrír aðrir flokkar fengu sæti í Dúmunni. Kommúnistaflokkur Rússlands kom næstur á eftir Sameinuðu Rússlandi með 40 sæti, hægrisinnaði þjóðernisflokkurinn LDPR fékk 25 sæti og flokkurinn Nýtt fólk hlaut 20 sæti.
Búið er að telja meira en 95% atkvæða en búist er við lokaúrslitum síðar í vikunni.
Fréttin var uppfærð og fyrirsögn breytt.