Á vef flugvallarins má sjá að flestar vélar sem áttu að fara frá Keflavík í morgun hafa tafist, en meðal annars varð rúmlega klukkutíma töf á brottför vélar Icelandair til Manchester sem og nokkuð langar tafir á vélum WestJet og Delta til Kanda og Bandaríkjanna.
Að sögn Guðjóns Helgasonar, upplýsingafulltrúa Isavia, hafa einhverjar tafir orðið vegna vinds en hann segir að töluvert rok hafi verið á flugvellinum í morgun. Allar tafir hafi hins vegar verið innan marka.