Valdimar Breiðfjörð Birgisson varaþingmaður mun taka sæti á Alþingi í dag í fjarveru Sigmars Guðmundssonar, þingflokksformanns Viðreisnar.Í frétt Vísis kemur fram að Sigmar sé kominn í veikindaleyfi, en hann hefur verið fjarverandi í upphafi þingvetrar. María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, staðfestir þetta við Vísi og segir óvíst hvenær Sigmar kemur til baka. Hún verður þingflokksformaður Viðreisnar í fjarveru Sigmars.
Sigmar farinn í veikindaleyfi