Hafnarfjarðarbær og Stólpi hafa náð samningum um uppbyggingu á nýju tímabundnu hverfi sem rísa á við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarveg í Hafnarfirði.
Byggja á 130 hús með 260 íbúðum sem verða 35 fermetrar. Fyrirtækið Stólpi sér um uppsetningu og leigir húsnæðið til fyrirtækja til afnota fyrir starfsfólk þeirra.
„Þetta er í raun og veru mjög góð lausn fyrir þessi fyrirtæki,“ segir Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar. „Þetta er líka gott fyrir okkur því að við reiknum með að það fækki íbúum í óleyfisíbúðum sem eru því miður of margar í atvinnuhverfum og við lítum þannig á að þetta verði öruggara og betra húsnæði fyrir þá sem þar búa,“ segir Orri.
Stefnt er að því að fyrstu íbúðirnar rísi á síðari hluta næsta árs.
Ekki verið gert áður á Íslandi
Lóðarleigusamningar verða til 10 ára. Hægt verður að fjarlægja einingarnar að þeim tíma loknum og nýta á annarri staðsetningu. Í framhaldi á Styrkás Fasteignir rétt til úthlutunar lóða á svæðinu til uppbyggingar varanlegs íbúðarhúsnæðis. Orri segir að ekki hafi verið ráðist í sambærileg verkefni áður á Íslandi.
„Ekki með þessum hætti og ekki af svona miklum metnaði. Þetta eru mjög flottar einingar og fallegar. Þetta er allt annað heldur en að raða upp gámum eins og hefur verið gert þar sem er svo sem ekki gengið frá neinu. Þarna verður gengið frá hlutunum og þetta verður bara snyrtilegt og fínt hverfi,“ segir Orri.
Byggt í tveimur áföngum
Húsnæðið verður einungis leigt til starfsfólks fyrirtækja en ekki einstaklinga. Það er ekki ætlað fjölskyldum eða til varanlegrar búsetu eldra fólks. Skipulagslýsing hverfisins á að liggja fyrir þann 1. október og verður deiliskipulag auglýst í febrúar á næsta ári.
Uppbyggingin fer fram í tveimur áföngum. Í fyrsta áfanga er stefnt að því að byggð verði 50 hús með 100 íbúðum og í öðrum áfanga er stefnt að byggingu 80 húsa með 160 íbúðum.
Húsin eru hönnuð af Batteríinu Arkitektum og byggð með einingalausnum frá tékkneska fyrirtækinu KOMA MODULAR, sem sérhæfir sig í einingahúsum.