Magnúsi Franklín, foreldri í Hafnarfirði, brá í brún á föstudaginn er hann fann persónuupplýsingar um önnur börn en hans eigin á vef Matarstundar, sem sér um skólamáltíðir í leik- og grunnskólum í Hafnarfirði. Magnús starfar innan tæknigeirans og vinnur mikið með netöryggi.
Hann segist hafa verið að skoða matseðla á vefsíðunni er hann fann hlekk í gegnum síðukóða, eða dev tools eins og það kallast.
Hlekkurinn leiddi hann að Excel-skjali sem sýndi upplýsingar á borð við hvort börn væru með ofnæmi fyrir tiltekinni fæðu eða með sérþarfir eins og einhverfu sem gætu haft áhrif á matarvenjur.
Magnús kveðst strax hafa tilkynnt skóla barnanna, fyrirtækinu og Persónuvernd um lekann. Hann segir það fyrirtækinu til málsbóta að hafa brugðist hratt og vel við. Honum þyki aftur á móti forkastanlegt að svona lagað geti gerst og ljóst að hans mati að fyrirtækið hafi ekki haft í huga að það hefði viðkvæm gögn undir höndum.
Komið í lag
Pétur Viðarsson framkvæmdastjóri Matarstundar segir sér þykja atvikið afar leiðinlegt. Fyrirtækið hafi einnig tilkynnt það til Persónuverndar og bíði svara frá stofnuninni.
Hann segir skjalið ekki hafa verið aðgengilegt beint á síðunni, en að ljóst sé að einstaklingur með góða tæknikunnáttu eins og Magnús hafi getað fundið það. Aðspurður kveðst Pétur telja að upplýsingarnar hafi verið aðgengilegar frá því að síðan var opnuð í upphafi skólaárs.
„Við vorum þakklát þessu foreldri fyrir að finna út úr þessu, frekar en ef þetta færi út um allt. Hann benti okkur á þetta og um leið og hann gerði það þá lokuðum við strax fyrir þetta. Þetta gerðist á föstudagsmorgun, síðan lá niðri í nokkra klukkutíma á meðan verið var að leysa úr þessu og þetta er komið í lag núna.“