Ítalir vilja banna búrku og niqab í skólum

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Ítalir vilja banna búrku og niqab í skólum.
Þeir setja einnig lög um hve margir útlenskir nemendur megi vera í hverjum bekk. Þetta er eitthvað sem er löngu tímabært, þó fyrr hefði verið segja margir.
Í dag verður lagt fram frumvarp á ítalska þinginu sem leggur til bann við búrku og niqab í skólum landins og setur þak á fjölda útlendinga í bekk.
Giorgia Meloni tilkynnti þetta s.l. sunnudag á ungmennafundi flokksins, Bræður Ítalíu.
Tillagan mun einnig skylda foreldra útlenskra nemenda, sem glíma við alvarlega aðlögunarhæfni í ítölsku samfélagi að læra ítölsku.
Hún rökstyður mál sitt bæði með inngildingu og kennslunni.
„Ef aðeins eitt barn í bekknum skilur ekki ítölsku, mun barnið líklega læra tungumálið fljótt með hjálp frá kennara og bekkjarfélögum. En ef fjöldi barna sem skilja ekki tungumálið verður mikill – eða jafnvel meirihluti – þá er þetta ekki lengur samþætting. Þetta er vanræksla.“
Hún lagði jafnframt áherslu á að nemendur eigi að mæta í skólann þannig að andlit þeirra sjáist:
„Á Ítalíu getur enginn með vísan til raunverulegrar eða tilvísunar til hefðar ákveðið að ung kona skuli fela sig.“
Meloni upplýsti ekki hve fjöldi útlendinga í bekk ætti að vera. Nemendur sem ekki kunna ítölsku eru um 11.6% af nemendum í skólum landsins.
Þetta snýst að þessu sinni um tilkynnta löggjöf. Tillagan hefur ekki enn verið lögð fram né samþykkt.
Áætlanir Ítala koma á sama tíma og víðtæk evrópsk umræða um hulin andlit á opinberum stöðum og stofnunum. Hér er ekki bara verið að tala um búrku heldur allt sem hylur andlit. Víða í mótmælum má sjá mótmælendur hylja andlit sín og það er líka bannað samkvæmt banninu. Rökrétt.
Frakkland, Belgía, Danmörk og Austurríki hafa þegar innleitt almenn bönn á klæðnaði sem hylur andlit á opinberum stöðum. Sviss tók upp svipað landsþekkt bann árið 2025.
Holland hefur síðan 2019 haft takmarkaðri bann, sem gildir meðal annars í menntastofnunum, á sjúkrahúsum, í opinberum byggingum og í almenningssamgöngum.
Reglurnar beinast að földu andliti eins og niqab og búrka, ekki gegn hijab og öðrum höfðufötum þar sem andlitið er sýnilegt.
Heimild: Italy to ban veils in schools, limit foreign students per class, Meloni says | CNN